lengd þingfundar og búnaðarþing.
Virðulegur forseti. Við erum ekki á góðum stað. Hér er virðulegur forseti búinn að segja okkur að hún geri sér vonir um að þessu verði lokið fyrir klukkan átta í kvöld. Það hefur komið fram að hjá Sjálfstæðismönnum hefst móttakan klukkan sjö og við borðum með okkar fólki í kvöld. Hæstv. ráðherra kemur hér hálfflissandi og segir okkur að hún skuli sjá hvernig þetta gangi fram, allt saman, þessi umræða, hvort við klárum hana bara ekki á tveimur og hálfum tíma eða hvað það er sem á að gefa í þetta. Það er eitt annað mál á dagskrá á eftir.
Svo kemur hv. þingflokksformaður Viðreisnar, Sigmar Guðmundsson, og segir: Það fara allir að hitta bændur í kvöld, þið þurfið engar áhyggjur að hafa af því. Stendur það, virðulegur forseti, sem þingflokksformaðurinn er að segja hér, að fundi verði þá lokið um kvöldmatarleytið þannig að við getum farið og sinnt okkar störfum þar? Eða hverju eigum við von á? Eða er svipan þessi: Ef þið klárið ekki að ræða þetta stóra mál hér á (Forseti hringir.) tveimur og hálfum tíma í þinginu þá skulið þið fá að vera hér fram eftir kvöldi? Það eru nýju lýðræðislegu vinnubrögðin sem þessi ríkisstjórn vill ástunda. Það kemur svo sem ekki á óvart miðað við það sem við höfum verið að reyna undanfarið.