157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgumarkmið og kjarasamninga.

[15:39]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Vonbrigði. Fagnað of snemma. Þetta eru sömu svör og ég fékk í síðustu viku frá hæstv. forsætisráðherra. Það er nú þannig að flestir Íslendingar fagna einhverri gleði með flugeldum en ríkisstjórnin fagnar hér öllu með skattahækkunum. Þetta eru sömu frasar og þetta eru þreyttir frasar og hér talar forsætisráðherra enn og aftur um bakslag, um óþarfaálagningu o.s.frv. En það er ekkert á réttri leið hjá hæstv. ríkisstjórn þegar verðbólgan situr föst langt yfir markmiði, vextir hækka aftur, atvinnuleysi eykst og hefur ekki verið jafn mikið í mörg ár. Verkalýðshreyfingin er farin að vara við því að kjarasamningar geti farið í sundur. Ég ætla að minna á það að forsenduákvæði kjarasamninga geta haft áhrif á verðbólguvæntingar og leitt til frekari vaxtahækkana. Fólkið í landinu á núna rétt á skýrum svörum. Er ríkisstjórnin tilbúin að gera það sem ábyrgar ríkisstjórnir gera við þessar aðstæður? Er ríkisstjórnin tilbúin til að segja: Engar frekari skattahækkanir, gjaldskrár ríkisins fari ekki umfram 2,5%? Eða er svarið einfaldlega það að ríkisstjórnin ætli áfram að ýta undir verðbólguna (Forseti hringir.) með vanhugsuðum lagasetningum og aðgerðum og sjá til þess að Seðlabankinn verði áfram einn í baráttunni?