sjávarútvegur og ESB.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Fyrstu viðbrögð mín eru þau að ég trúi því að við berum öll sömu hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Síðan greinir okkur á um það hvaða leiðir eru bestar til að ná þeim hagsmunum. Mér finnst hv. þingmaður óþarflega lítill í sér í þessari umræðu um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið vegna þess að það liggur fyrir að í þeim aðildarviðræðum mun ýmislegt koma í ljós. Ég get eytt tímanum hér í að fara yfir það af hverju ég trúi því að við munum ná fram ákveðnum sérlausnum, vonandi á því stigi að við teljum að það þjóni hagsmunum okkar betur að vera inni í Evrópusambandinu. Ég get líka farið yfir það hér að það er ekki tímabært að gefa það upp á bátinn að við náum slíku fram. Stóra málið er að nú í haust verður þjóðin spurð hvort hún vilji athuga þessi mál og við leggjum í vegferðina þaðan, ef meiri hluti þjóðarinnar samþykkir. Geri þjóðin það ekki þá búum við við óbreytta stöðu. En mig langar bara til að árétta að það er miklu stærra svar, 29. ágúst, að segja nei vegna þess að það læsir okkur inni. Það að segja já býður upp á ótal möguleika. En ég ætla líka að taka undir það, af því að ég hygg að það hafi verið hluti af spurningunni hjá hv. þingmanni, hvort ég sé sammála hæstv. utanríkisráðherra varðandi auðlindirnar okkar, þær eru þarna undir. Við viljum og þurfum að halda yfirráðum yfir þeim. Við erum þjóð sem býr að ríkulegum auðlindum. Það er lykilatriði fyrir okkur að við höldum þeim yfirráðum.