157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

samskipti ráðherranefndar ríkisfjármála og peningastefnunefndar Seðlabankans.

[15:55]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að festa í sessi verk okkar Framsóknarmanna og okkar í Framsókn en hún lýsti því svo listavel á flokksstjórnarfundi nú um helgina og sagði stolt að það væri verið að auka við hlutdeildarlán og stofnframlög á húsnæðismarkaði ásamt því að styrkja Menntasjóð námsmanna. Ég vil bara þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að lyfta upp okkar góðu verkum. En eitt af því sem hefur ekki tekist hjá hæstv. forsætisráðherra er styrk efnahagsstjórn. Aðgerðir sem forsætisráðherra hefur stutt, líkt og að auka opinber útgjöld um 9%, hækka álögur á almenning, hækka laun æðstu embættismanna vel yfir verðbólgumarkmið og samþykkja verulega hækkun á gjaldskrám orkufyrirtækja, hafa m.a. leitt til þess að verðbólga hefur aukist á ný.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands segir, með leyfi forseta:

„Að nokkru leyti má rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá bættust við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka.“

Annað sem ég hjó eftir á fundi peningastefnunefndar voru ummæli forystumanna Seðlabankans þegar þeir voru spurðir út í samstarf ríkisstjórnar við bankann. Þá var sagt að Seðlabankinn hefði ekki séð mögulegar efnahagsaðgerðir stjórnvalda. Ég fékk það á tilfinninguna að samráðið væri ekki nægilega mikið á milli stjórnar ríkisfjármála og peningamála.

Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hversu oft hefur ráðherranefnd um efnahagsmál eða ríkisfjármál fundað með Seðlabankanum á síðustu 12 mánuðum?