157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

samskipti ráðherranefndar ríkisfjármála og peningastefnunefndar Seðlabankans.

[15:58]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og gaman að heyra að hann sé að hlusta vel á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. Já, við erum að laga hlutdeildarlánakerfið. Það var ákveðið misvægi þar, m.a. milli fjármálaráðuneytisins og húsnæðismálaráðuneytisins, sem gerði það að verkum að lánin rötuðu illa út. Nú er búið að gera breytingar sem hafa skipt miklu máli því að í grunninn virðist þetta vera ágætiskerfi. Við erum líka að efla stofnframlögin þannig að þau rati frekar út á hverja íbúð með því að hækka í rauninni fjárhæðina á hverja íbúð. Þetta er auðvitað það sem var í fyrsta húsnæðispakkanum og fleira, m.a. Airbnb-frumvarpið sem var samþykkt hérna fyrir helgi og Framsókn reyndar greiddi atkvæði á móti. En það er komin bara strax frétt um það að þetta er farið að hafa áhrif á t.d. aðila sem eru fyrst og fremst að nota íbúðir til að leigja út til ferðamanna þrátt fyrir að íbúðagisting borgi margfalt lægri fasteignagjöld en atvinnuhúsnæði. Það er bara gott að sjá að þetta sé að detta inn.

Hér er ýmislegt rætt og ég veit ekki hversu mikið ég á að fara í smáatriðin á þessu. Það er auðvitað ekki þannig að það sé allt í ranga átt í efnahagsmálunum. Ég fór yfir það áðan, við höfum séð lækkun skulda um 7,5%. Við erum að sjá fyrstu hallalausu fjárlögin núna í að verða tíu ár. Hér er verið að tala um hækkun launa æðstu embættismanna. Það liggur alveg fyrir að kjarasamningar t.d. framhaldsskólakennara voru á okkar borði þar sem það var ekki búið að klára þá af fyrri ríkisstjórn, fyrir síðustu kosningar. Það var klárað og já, það var samið umfram merkið, það er alveg rétt. En aðrar kjarasamningshækkanir sem eru að detta núna inn áttu sér stað fyrir tíð þessarar ríkisstjórnar, mér finnst allt í lagi að taka það fram. En það breytir því ekki að þetta er verkefni sem við erum að eiga við.

Hér er líka talað um gjaldskrárhækkanir, margar hverjar sem voru m.a. í fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar sem Framsóknarflokkurinn var aðili að.

Varðandi samskipti mín við Seðlabankann þá vill nú þannig til að ég á fund með seðlabankastjóra eftir 15 mínútur í forsætisráðuneytinu. Við hittumst reglulega. Ég veit ekki alveg hvernig mörkin voru á milli Seðlabankans og ríkisstjórnar fyrr, (Forseti hringir.) en við erum ekki endilega að ræða hvaða vaxtabreytingar verða eða nákvæmar útfærslur á okkar fjármálaáætlun, enda eru svona ákveðnir veggir þarna á milli. (Forseti hringir.) En hann hefur vitað það frá því að þessi ríkisstjórn kom að við stefndum að hallalausum fjárlögum.