157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

samskipti ráðherranefndar ríkisfjármála og peningastefnunefndar Seðlabankans.

[16:01]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið. Ég held að það fari ekki fram hjá neinum sem fylgist með íslenskum stjórnmálum, og alveg örugglega ekki seðlabankastjóra, að það er stefnt að hallalausum fjárlögum. Seðlabankastjóri talaði hins vegar um að það sé ekki eini mælikvarðinn, það sé einn af mælikvörðunum og ekki kannski endilega sá besti til að ná niður vöxtum og verðbólgu en klárlega áfangi. En einhvern veginn er alltaf talað um að það sé stóra verkefnið og ég ætla ekki að gera lítið úr því verkefni.

Mig langar hins vegar að reyna að fá svar við spurningunni sem ég spurði varðandi ráðherranefnd um efnahagsmál, hver staðan er á þeirri nefnd og hvort sú nefnd hafi fundað með Seðlabankanum eða hvort sú nefnd hafi fundað yfirhöfuð og hvort sú nefnd sé að störfum, vegna þess að það sést afskaplega lítið um það á vef Stjórnarráðsins.