aðgerðir vegna hækkunar stýrivaxta og verðbólgu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eðlilega er þetta okkur öllum ofarlega í huga. Þetta hefur verið eilífðaráskorun á Íslandi, staða vaxta og staða verðbólgu. Ég hef sagt það áður og ég endurtek það að stærsta einstaka aðgerðin sem ríkið getur farið í er að tryggja að þær aðgerðir sem við ráðumst í séu nettó ekki að skapa þenslu. Þess vegna skiptir umræddur frumjöfnuður og umrædd afkoma svona rosalega miklu máli. Síðan geta auðvitað verið skiptar skoðanir á því með hvaða hætti við gerum það og það mun t.d. birtast í næstu fjármálaáætlun að við erum ekkert með ósvipaðar tekjutillögur hvað varðar upphæðir og fyrri ríkisstjórn en samsetning þeirra t.d. skiptir máli. Er verið að hlífa heimilunum eða ekki? Við lögðum sérstaklega á okkur að á tekjuhliðinni værum við að hlífa heimilunum. Ég ætla ekkert að úttala mig um það hérna en það skiptir miklu máli að það sé verið að reyna að fara í þensluna þar sem hún á sér stað.
Ég vil líka vekja athygli á því að nú í morgun var hæstv. atvinnuvegaráðherra að tilkynna það að hún væri að setja aukið fjármagn inn til Samkeppniseftirlitsins til að tryggja að við getum fylgst betur með þeirri álagningu sem mann er farið að gruna að sé farið að bera á í íslensku neytendaumhverfi. Auðvitað er alltaf þessi hætta, sem ég skil vel og sýni bara ákveðna auðmýkt gagnvart, þegar það eiga sér stað einhverjar hækkanir, eins og þegar það voru gjaldahækkanir í upphafi árs, að einhverjir nýti ferðina. Ég verð samt að segja varðandi þær gjaldahækkanir: Hvenær er góður tími til að fara í þær? Við höfum verið að sjá hnignandi framlög til innviðaframkvæmda í landinu. Þetta eru t.d. kílómetragjöld sem voru á langtímaplani síðustu ríkisstjórnar og voru að fjármagna stór kosningaloforð þar langt fram í tíma. Margir milljarðar sem lifðu þar inn í fjármálaáætlun og fólk var að deila út. Við þurfum því að passa okkur þegar kemur að gjaldahliðinni en við þurfum auðvitað fyrst og fremst að tryggja að þær aðgerðir sem ráðist verði í beinist ekki að heimilum landsins hvað varðar að auka álögur þeirra.