157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

aðgerðir vegna hækkunar stýrivaxta og verðbólgu.

[16:07]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Ég ætla að nýta tækifærið fyrst ég er hér bara í eina viku til að spyrja um málefni sem er mikilvægt fyrir okkur öll og ekki síst fyrir okkur á Suðurnesjum. Það vekur athygli að ekki er sérstaklega minnst á innflytjendur í boðaðri atvinnustefnu. Samkvæmt tölum OECD telja aðeins 18% innflytjenda á Íslandi sig ná tökum á íslensku á meðan meðaltalið í OECD er 60%. Það bendir til þess að mikilvægt sé að huga nánar að þessum hópi með markvissum aðgerðum.

Telur hæstv. ráðherra ekki að fullt tilefni sé til að samþætta boðaða atvinnustefnu stjórnvalda við aukið framboð á íslenskunámi og frekari stuðning við innflytjendur með það að markmiði að efla þátttöku þeirra á vinnumarkaði og auka verðmætasköpun í landinu?