aðgerðir vegna hækkunar stýrivaxta og verðbólgu.
Frú forseti. Ég þakka fyrir fyrirspurnina og ég þakka líka fyrir brýninguna. Ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt. Ég vil vekja athygli á því að við vorum að afgreiða út úr ríkisstjórn, og það er komið núna til þingflokka meiri hlutans, aðgerðaáætlun sem snertir innflytjendur hér á landi og framkvæmdaáætlun því tengdu og þar er sérstaklega verið að horfa til íslenskukennslu. Ég get líka sagt hérna að ríkisstjórnin tók sérstaka ákvörðun um það í komandi fjármálaáætlun að það væri sérstaklega horft til þess að efla íslenskukennslu. Það voru ákveðin framlög sem komu tímabundið inn út af Covid og hafa verið nýtt í ýmsum tilgangi, m.a. til þessa, og þetta er eitthvað sem við ætlum að viðhalda. Þetta er áskorun. Ég verð að segja að mér sjálfri blöskraði þegar ég sá upplýsingar um í rauninni bara þá þekkingu sem fólk af erlendum uppruna hefur haft á tungumálinu og það erum auðvitað við sem samfélag sem höfum brugðist, þ.e. að 18% erlendra aðila hér á landi telji sig hafa góð tök á tungumálinu meðan talan er 60% í OECD. Það er áfellisdómur yfir íslensku samfélagi og þarna verðum við að gera betur.