157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:51]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Takk fyrir. Það er akkúrat þetta. Við búum við töluvert mikla upplýsingaóreiðu í þessari grein þannig að það er erfitt að fara að diskútera það hér nákvæmlega, með nákvæmum upplýsingum, með nákvæmum tölum. En Hafrannsóknastofnun er að vinna nýtt áhættumat, mat þeirra á áhættunni og það er auðvitað það sem liggur til grundvallar þeim ákvörðunum sem síðan eru teknar.

Varðandi hvatana sem hv. þingmaður spyr um þá er það bara nákvæmlega þannig. Helstu hvatarnir eru — það á ekki bara við um íslenska lagasetningu, það á við alls staðar þar sem þetta sjókvíaeldi er til staðar, að það er verið að bíða eftir því að annars vegar komi fram lokaðar kvíar sem sinni sínu hlutverki og hins vegar ófrjór lax. Svo lengi sem ég man hefur það alveg verið að koma. Það er þess vegna sem er hægt að segja að við getum því miður ekki, og ég segi því miður, verið með svokallað sólarlagsákvæði í þessu frumvarpi þar sem við ákveðum fyrir fram hvenær tíminn er kominn til að stöðva opið sjókvíaeldi á frjóum laxi. Við erum bara ekki þar. En við getum búið til fjárhagslega hvata (Forseti hringir.) í þessu frumvarpi, sem eru til staðar, þannig að þegar þetta verður þá muni fyrirtæki hafa hag af því að flytja sig þangað. (Forseti hringir.) Svo er þetta undir endurskoðunarákvæði komið. En ég bind raunverulega miklar vonir við að það verði innan ekki mjög margra ára.