lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hér í seinni spurningu, seinna andsvari, langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra um hlut sem ég hef haft dálitlar áhyggjur af alveg frá því að löggjöfin var sett á sínum tíma, árið 2019, þ.e. þessa áherslu á skattlagningu og gjaldtöku. Við þekkjum þessa umræðu. Ég óttast það að ef of hratt er gengið um gleðinnar dyr í þeim efnum þá geti það komið aftan að okkur hvað varðar það að það sé raunverulega verið að gera allt sem nokkur kostur er til að tryggja viðgang villta laxastofnsins okkar. Ef kvaðirnar verða of miklar hvað gjaldtökuhlutann varðar þá eykst hættan, þetta er bara eins og í hverjum öðrum rekstri, á því að ekki sé farið, ef svo má segja, alla leið hvað framkvæmd rekstrar varðar. Þannig að mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann vegur þetta á vogarskálunum: Markmiðið að ná (Forseti hringir.) umtalsverðum tekjum af þessum rekstri sem er í miklum fjárfestingarfasa og ungur í samhengi hlutanna (Forseti hringir.) hér á Íslandi, samanborið við áhættuna af því að ef menn ganga of langt í þeim efnum geti það mögulega skaðað (Forseti hringir.) þá framkvæmd sem annars væri mögulega auðveldara að setja þrýsting á að væri viðhöfð.
(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur á ræðutímann, sem er takmarkaður í þessum andsvörum.)