157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans erindi. Mig langar aðeins, af því að það kom hér fram í orðaskiptum hæstv. ráðherra áðan og hv. þm. Bergþórs Ólasonar, að nefna svokallað affallagjald. Þar kemur fram að við útreikning gjaldstofns skuli fyrst draga 10% fjölda útsettra seiða vegna væntra affalla og talningarskekkju og að gjald skuli greiða af afföllum umfram þetta hlutfall. Nemur það um 100 kr. á hvern fisk umfram viðmið. Þar er reyndar tekið fram: nema um sé að ræða óviðráðanleg ytri atvik sem stjórnvald metur sérstaklega. Mig langar aðeins í þessu samhengi að velta því upp með hv. þingmanni hvort þetta, ja, hvaða orð svo sem við notum yfir þetta, affallagjald eða eitthvað annað — þetta hljómar nú svolítið á mannamáli eins og skattur á tjón og er væntanlega hugsað einhvern veginn þannig að ef um stórkostlegt gáleysi er að ræða eða eitthvað slíkt, ég átta mig ekki alveg á því, þá sé heimild til staðar til að færa ákveðið gjald á það tjón. Spurningin er í rauninni tiltölulega einföld til hv. þingmanns: Erum við með í öðrum atvinnugreinum eitthvað sambærilegt ákvæði og þetta? Ég get bara slegið því upp að það getur nú aldeilis orðið tjón t.d. í landbúnaði líka eða iðnaðarframleiðslu, stóriðnaði. Erum við einhvers staðar með annars staðar í okkar regluverki það að skattleggja það sérstaklega þegar einhver atvinnuvegur verður fyrir meiri háttar tjóni?