157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:29]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Við ræðum hér tvö mál og ég held að mín ræða muni nú einskorðast við frumvarpið sem snýr að lagareldinu. En ég vil taka það sérstaklega fram að þó að ræða mín fjalli fyrst og fremst um lagareldi þá er það ekki vegna þess að ég hafi minni áhuga á hinu frumvarpinu heldur gerir þetta fyrirkomulag sem okkur er boðið upp á núna, að taka málin bæði í einu, það að verkum að svona er nú komið fyrir mér.

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu og sömuleiðis að vera hér til andsvara. Hvað varðar opið sjókvíaeldi þá held ég að við verðum að horfa til þess að það er atvinnugrein sem er komin til að vera og göngum út frá því. Mun vinna mín innan atvinnuveganefndar sömuleiðis miðast við það. Það þýðir samt ekki að við þurfum að vera með einhver vettlingatök á atvinnugreininni sem slíkri. En það ber alltaf að gæta hófs þegar kemur að aðhaldi að atvinnugreinum. Það kerfi og sú umgjörð sem atvinnugreinin býr við í dag sem snýr að gjaldtöku og skattatöku sömuleiðis — það gengur ekki til lengdar að búa við það kerfi sem er í dag. Því er það jákvætt skref sem hæstv. ráðherra tekur hér í þessu frumvarpi þar sem horfið er frá veltutengdu gjaldi og það komi frekar til þess að horfa á hagnað þegar miðað er við gjald.

Hvernig viljum við sjá atvinnugreinina þróast? Ég held að það sé alveg ljóst að þau slys sem hafa orðið á undanförnum árum viljum við ekki sjá. Ég held að það séu allir sammála um það. Verður hægt að koma í veg fyrir slysin? Stutta svarið er nei. Það geta alltaf orðið slys en reynum að lágmarka skaðann sem af slysunum verður. Er frumvarpið þess efnis að taka nægilega vel á því? Eftir þá umræðu sem hefur verið hér og eftir yfirlestur á frumvarpinu þá rek ég nú svo sem ekkert sérstaklega á það að frumvarpið sé sérstaklega að taka á því. Aftur á móti er fjallað um mótvægisaðgerðir ef slys verða og er það vel. Það tengist svo sem seinna málinu sem verður sennilega minna rætt í þessari umræðu.

Sömuleiðis, eins og hefur komið fram í umræðunni, vorum við að eiga við sams konar mál hér fyrir tveimur árum síðan. Ég held að það sé næstum því upp á dag sem það eru tvö ár síðan við vorum hér og þáverandi hæstv. ráðherra mælti fyrir frumvarpi sem þá var. Það var Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sem var, held ég, í sínu fyrsta embættisverki, á fyrsta eða öðrum degi, fékk þetta léttmeti til að mæla fyrir hér í þingsal. Við tókum svo sem málið ágætlega fyrir og unnum ágætlega í því í nefndinni en það var þannig og við skulum ekkert draga neina fjöður yfir það að sú gjaldtaka og skattheimta sem var lögð til og sömuleiðis sektir voru á þann veg að sá meiri hluti sem starfaði þá náði ekki saman um það. Hæstv. ráðherra var nú svo lukkulegur þá að vera þingmaður í þessari ágætu nefnd, atvinnuveganefnd, og þekkir söguna vel.

En við erum komin hér og hér er verið að taka góð skref um framtíðaratvinnugrein. Ekki bara opið sjókvíaeldi, við erum sömuleiðis að fjalla um landeldi, hafeldi og fjarðabeit, sem er nýjung. Það kom fram í máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar áðan að útflutningsverðmæti er á milli 40–50 milljarðar á ári. Landeldið er á fullri ferð og er að vaxa, sem er vel, en þar þurfum við sömuleiðis að stíga varlega til jarðar. Við þurfum að vanda okkur. Það þarf að gera vel þar líka og það er ekki bara einfalt mál. Ég held að það sé sennilega einfaldara að rækta lax í opnum sjókvíum heldur en á landi. Og það þarf að vanda sig. Það eru sömuleiðis ákveðnir annmarkar í landeldinu hvað varðar legu, aðgang að orku og aðgang að hreinum sjó og vatni. Það þarf gríðarlega orku, gríðarlegt magn af vatni og sjó til þess að hægt sé að starfrækja landeldisstöð. Það er engin tilviljun að þær landeldisstöðvar sem eru til staðar og fyrirhugað er að byggja eru allar staðsettar á gosbeltinu fyrir norðan og á Reykjanesi. Það er væntanlega vegna þess að það er gott aðgengi að vatni, sömuleiðis er auðvelt að komast í jarðsjó og tiltölulega þægilegt að nálgast orkuna.

Þegar við ætlum að búa til umgjörð um atvinnugrein, sem ég held að við getum öll verið sammála um að sé sennilega einn mesti vaxtarbroddur í verðmætasköpun og eitt mesta tækifæri sem íslensk þjóð hefur staðið frammi fyrir í langan tíma, þá þurfum við að vanda okkur. En er málið þannig vaxið að það sé bara betra að humma það fram af sér? Við vitum öll að það verður ágjöf. Það verður ágjöf, eðlilega, frá náttúruverndarsinnum, frá veiðiréttarhöfum og fleiri aðilum, sérstaklega í því sem snýr að sjókvíaeldinu. En það er skylda okkar hér á Alþingi, og núna er lag að Alþingi sameinist um það, að taka utan um þessa öflugu og góðu atvinnugrein og klára að setja ramma utan um atvinnugreinina. Verkefnið verður flókið. Það verður tímafrekt. En í mínum huga á þetta frumvarp og bæði frumvörpin að vera í algjörum forgangi að mínu viti í störfum hv. atvinnuveganefndar á næstu vikum og við klárum þetta mál því að eins og ég skynja það þá er tækifærið núna. Það er ekki víst að það tækifæri gefist aftur að taka á svona máli miðað við það hvernig við erum samsett hér á þingi, svo það sé sagt. Ég held að atvinnuvegaráðherra sé kominn í svipaða skó og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þegar kemur að orkumálum og sennilega er atvinnuvegaráðherra hvað þetta mál varðar með meiri stuðning frá stjórnarandstöðunni. Það liggur alveg fyrir hvað varðar þá flokka sem eru í stjórnarandstöðu, nú ætla ég að tala bara fyrir þann flokk sem ég tilheyri, þ.e. Framsóknarflokkinn, miðað við þær ræður og þær umræður sem hafa verið hér í gegnum tíðina, að það er klárlega velvilji til staðar þegar kemur að því að halda áfram með málið og klára það.

Við þurfum sömuleiðis, frú forseti, að gæta að því að gera regluverkið ekki of flókið, gera fyrirtækjunum kleift að starfa. Það er engu fyrirtæki neinn hagur gerður með því að gjaldtakan sé úr hófi, að skattheimta sé úr hófi og sömuleiðis sektargreiðslur úr hófi ef slys verða. Það er lykilatriði fyrir atvinnugrein, nýja atvinnugrein — þó svo að hún hafi verið stunduð í einhverja áratugi í gegnum tíðina þá er hægt að tala um nýja atvinnugrein hvað það varðar — fyrir atvinnugrein sem er í þróun og vexti, að umgjörðin sé réttlát. Þannig skilar atvinnugreinin mestri arðsemi til þjóðarinnar. Það liggur alveg fyrir. Ég ætla ekki að fara að endurtaka ræðurnar sem ég átti hér fyrir ári síðan um veiðigjöld. (Gripið fram í.) En það sama á við þegar við erum að skapa ákveðna ramma utan um ákveðnar atvinnugreinar, við þurfum alltaf að gæta hófs í því hver gjaldtakan er.

Við getum síðan horft til þess að vera með ákveðnar mótvægisaðgerðir þegar kemur að vernd náttúrunnar, vernd villta laxastofnsins og lífríkis. Það er mjög mikilvægt að hafa það í huga. Það er sömuleiðis jákvætt skref stigið hér sem snýr að fjármunum sem geta runnið til viðkomandi sveitarfélaga þar sem eldið er stundað.

En ég verð samt, frú forseti, að velta því hér upp í ræðu sem snýr að því hvaða skref verða tekin varðandi friðun ákveðinna fjarða, það sem snýr að Eyjafirði og Öxarfirði. Ráðherra fór svo sem ágætlega yfir það í sinni ræðu. Þetta vorum við með í vinnslu fyrir tveimur árum síðan. Og nú ætla ég að hætta mér út á ákveðið sprengjusvæði, frú forseti, hvað það varðar að fjalla um hvernig við nálguðumst þann verkferil en þá lá fyrir friðun á Öxarfirði og Eyjafirði. Ég skil vel hvernig ráðherra nálgast þetta, að nærsamfélagið taki ákvörðunina. Ég held að það sé svo sem að mörgu leyti gott skref. En fyrir atvinnugreinina í heild sinni og til þess að reyna að skapa einhverja sátt, þá eigum við að mínu viti að horfa til þess að opið sjókvíaeldi sé fyrst og fremst fyrir vestan og austan. Það verði síðan íbúa við Eyjafjörð og við Öxarfjörð — það verði bara tækifæri til þess að ákveða það hvort íbúar á þessum svæðum vilji hafa sjókvíaeldi eða ekki. En ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að horfa til þess að nú er búið að gefa út leyfi fyrir eldi upp á einhver 116.000 tonn, 90.000 tonn af frjóum fiski. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við horfum til þess að þær heimildir sem fyrir eru verði nýttar fyrst. Það er langt frá því að þær heimildir sem búið er að gefa út séu nýttar. Staðinn verði vörður um uppbyggingu þessara fyrirtækja, bæði fyrir austan og vestan, og þeim leyft að dafna, því við vitum öll hvaða umbreyting varð á þeim svæðum á Vestfjörðum og Austfjörðum þegar sjókvíaeldi kom þar og hóf sína innreið og uppbyggingu og hversu mikið það hefur gert fyrir þessi samfélög, hvað þessi atvinnugrein og þeir fjárfestar sem höfðu dug á þeim tíma, sem voru nú flestir erlendir ef ég man rétt, sem trúðu á það að fara í verkefnið, hafa gert mikið fyrir þessi samfélög. Þess vegna er mikilvægt, frú forseti, að við stöndum vörð um þessa ágætu verðmætasköpun, sköpum ákveðinn ramma, förum okkur hægt en gerum þetta vel.