157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:54]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir mjög góða ræðu. Ég var sammála honum, held ég bara, í meginatriðum. Mig langar í þessu fyrra andsvari mínu aðeins að spyrja hann út í vinnu nefndarinnar á síðasta kjörtímabili. Þá var hann formaður atvinnuveganefndar og hann fór yfir það í ræðu sinni að málið hefði stoppað. Nú tel ég mig vera frekar skilvirka konu og ég vil að hlutirnir gangi svolítið vel fyrir sig þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Hvaða víti eru til að varast? Væntanlega eftir þessa umræðu, hvort sem hún klárast í kvöld eða á morgun eða í vikunni, þá gengur frumvarpið til atvinnuveganefndar og mig langar að spyrja hv. þingmann sem fyrrum formann nefndarinnar: Er eitthvað sem við getum passað upp á til að málið gangi vel fyrir sig en fái samt þá faglegu umfjöllun sem málið krefst? Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt. Ég held líka að það sé mikilvægt fyrir atvinnugreinina og fyrir þessi umhverfissjónarmið sem eru kynnt í frumvarpinu að málið nái fram að ganga.

Mig langar líka að heyra aðeins í hv. þingmanni því hann fór líkaaðeins inn á hvaða svæði eru notuð undir sjókvíaeldi og vísaði þá sérstaklega í Eyjafjörðinn. Mér heyrðist á honum að hann hefði nú verið sammála því að nota strandsvæðisskipulag sem ákveðinn grunn að því. Mig langar að nefna að við Vestfirðingar notuðum strandsvæðisskipulag þegar við vorum að ákveða hvar við legðum til að stundað yrði eldi og það var bara mjög mikil sátt um það og það var hlustað á sjónarmið heimamanna um hvar ætti að hafa eldi og hvar ekki. Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann sé ekki sammála þeirri nálgun að hafa strandsvæðisskipulag sem útgangspunkt um hvar sjókvíaeldi eigi að vera stundað.