lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir ljómandi góða spurningu. Hv. þingmaður kom inn á strandsvæðisskipulagið og ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið hvað það varðar, sömuleiðis ráðherra í þessu máli. Ég er alveg sammála þeirri leið. En það sem ég óttast aftur á móti er það að ef einhver lausatök eru varðandi það að framfylgja þessu mati — og við vitum það alveg að það verða feiknarleg átök, t.d. í Eyjafirði. Það verður öðruvísi, tel ég, í Öxarfirði eða á því svæði. Ég myndi meta það þannig. En það getur skaðað framgang málsins sem nú er til vinnslu. Hv. þingmaður velti því fyrir sér á hverju stoppaði síðast. Ég kom nú svo sem ágætlega inn á það í minni ræðu að samsetning þeirra 63 þingmanna sem hér eru á þessu kjörtímabili er svolítið önnur en var á því kjörtímabili. Ég held að það svari spurningunni nokkuð vel án þess að ég fari nokkuð dýpra ofan í það. En það er alveg ljóst að þegar kemur að því að ákveða hvar við ætlum að hafa opið sjókvíaeldi þá verður það umdeilt. Það sem ég er bara að vara við hér er að ef það verða ákveðin lausatök hjá heimamönnum varðandi strandsvæðisskipulagið þá getur það farið að rugga ákveðnum bátum og brugðið fæti fyrir þetta frumvarp sem við erum að fjalla um nú. Það er það sem ég óttast sérstaklega.