lagareldi.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir góða spurningu. Hún spyr mig aðeins út í hvað ég eigi við með nærsamfélagi. Hún er væntanlega að vísa til þess þegar ég nefndi það í ræðu minni hvernig við Vestfirðingar nálguðumst það hvar við vildum sjá fyrir okkur starfsemi sjókvíaeldis og hvar ekki. Það var gert í gegnum strandsvæðisskipulag og aðilar að því strandsvæðisskipulagi voru sveitarfélög á Vestfjörðum. Það náði ekki til annarra sveitarfélaga, enda er þetta skipulagsmál, þó svo að aðrir landshlutar hafi vissulega skoðun á greininni. Það er náttúrlega eðlilegt. Lagareldi er auðvitað atvinnugrein sem mjög margir hafa mjög sterkar skoðanir á en það breytir ekki því að við þurfum einhvern veginn — þegar ég tala um nærsamfélag á ég bara við nærsamfélag greinarinnar og fyrir mér skiptir miklu máli að nærsamfélög njóti auðlindarentu af greininni, eins og er í þessu.
Að þessu sögðu tek ég vissulega undir það sem hv. þingmaður sagði um að vernda villta laxinn. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt og við eigum ekki að stofna honum í hættu. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að samþykkja þetta frumvarp með þeim breytingum sem verða væntanlega í nefndinni, af því að núverandi löggjöf er ekki í boði fyrir náttúruna og hún er ekki í boði fyrir þessi fyrirtæki. Löggjöfin er orðin úrelt og ef við ætlum að gera eitthvað fyrir náttúru Íslands og vernda íslenska laxastofninn þá verðum við að gera breytingar á þessum lögum og við verðum að skapa greininni betri starfsskilyrði. Ég held að við séum að ná því með þessu frumvarpi og geri bara ráð fyrir því að nefndin verði með sínar áherslur líka og taki væntanlega eitthvað á þessum málum samhliða.