lagareldi.
Frú forseti. Hér erum við að ræða tvö frumvörp, um lagareldi annars vegar og svo um laxfiska og erfðablöndun hins vegar. Mér er málið ágætlega kunnugt og ég hef lesið í gegnum bæði frumvörpin. Þar er ýmislegt sem ég held að hv. atvinnuveganefnd þurfi að fara yfir og og skoða umsagnir sem koma, því að hér liggja verulega miklir hagsmunir undir. En það sem mig langar að byrja á að tala um, frú forseti, áður en lengra er haldið er — ekki það að ég vorkenni sjálfum mér sem stend hér í pontu, en nú er að hefjast móttaka bænda í Valhöll hjá Sjálfstæðisflokknum og við erum hér í gangi með fund, sem er kannski bara allt í lagi. En það var alla vega vilji til að lengja fund þannig að hann er nú reyndar til klukkan átta. Allt í góðu með það. En vinnubrögðin almennt eru þau, í sumum nefndum er það a.m.k. þannig, að eini staðurinn til að ræða málin er hér í pontu því að formenn einstakra nefnda neita að taka við gestum og fara með málin út í bullandi ágreiningi þar sem ekki er almennilegur vinnufriður í nefndunum. Þess vegna finnst mér að einhverju leyti dapurlegt þegar hæstv. forseti og hæstv. ráðherrar tala um að hér eigi bara að rumpa málum af og klára þau fyrir klukkan átta. Það finnast mér ekki góð vinnubrögð og enginn sómi að því.
Hér er um mál að ræða sem skiptir þúsundir manna miklu máli. Hér erum við að tala um stórt og mikið landsbyggðarmál. Laxeldi hefur reist Vestfirði við úr ákveðinni öskustó. Þar er komið líf í ýmsa bæi þar sem ekki var líf og þetta er góð innspýting fyrir Austfirði líka. En við getum ekki gleymt því að um land allt eru ótal mörg smáfyrirtæki í kringum hverja laxveiðiá og þó að þetta séu kannski lítil fyrirtæki í svona í daglegu tali þá er það samt þannig að þar er velt mjög miklu fjármagni sem fer síðan beint út í þau samfélög sem eru þar á svæðinu. Þar er verið að selja alls konar þjónustu í kring: Það er matur og það er leiðsögn og það er laxveiðileyfi og ýmislegt annað. Þetta er ofsalega góð landkynning og gott fyrir ferðamennskuna því að hingað sækir efnað fólk. Ferðamenn sem hingað koma í þessa veiði eru margir hverjir sterkefnaðir og það eru ferðamenn sem Íslendingar, held ég, sækjast almennt eftir, vel borgandi ferðamenn, og það þarf ekkert mikið til þess að þannig hópur styggist frá landinu. Við verðum að hafa það virkilega í huga að það eru verulegir hagsmunir undir þar líka um allt land. Þó að — ja, ekkert þó að: Þegar slysasleppingar verða og lax gengur — hann getur gengið tugi eða hundruð kílómetra í kringum landið og gengið í ár langt frá sínum kvíum, þó að það sé langalgengast að hann geri það ekki. Hann fer venjulega styttra enda frekar óhæfur til langs sunds, en hann getur farið víða. Og bara það að það fréttist af því, að orðsporið sé þannig að laxveiðiárnar á Íslandi séu að einhverju leyti útsettar fyrir því að þar veiðist eldisfiskur á stöng getur skaðað starfsemina, bara orðsporið. Það er mikilvægt að við séum með þetta í huga líka því að við eigum að reyna að láta þessa hagsmuni fara saman, þ.e. hagsmuni þeirra sem eru með opið eldi og svo þeirra sem eru veiðiréttarhafar í laxveiðiám víða um landið.
Að þessu sögðu langar mig aðeins að fara yfir frumvarpið. Það eru veruleg tækifæri í lagareldi. En við skulum samt ekki gleyma því að fiskurinn sem er í því þarf að éta og hann þarf prótein til að éta. Og það er einhvern veginn fengið. Það er oft fengið bara með því að veiða annan fisk og moka honum upp, þá einhvers konar uppsjávarfisk sennilega. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta er svona ákveðin kúrfa þar sem próteini er safnað saman og við nýtum það síðan og seljum það í dýru formi, sem er þá laxinn. Þetta snýst líka um Ísland og ímynd Íslands sem ferðamannalands, náttúruna og líka um mikla verðmætasköpun. Það er alveg ljóst að í eldislaxinum felast töluvert mikil verðmæti, eins og hefur komið fram hér í ræðum annarra þingmanna á svæðum sem hafa átt undir högg að sækja. Ég skil það fullvel að þau svæði taki þessum iðnaði fagnandi.
En við verðum alltaf að reyna að passa það að ein atvinnugrein skaði ekki aðra. Þess vegna þarf regluverkið í kringum þetta að vera sterkt og menn þurfa, sem hafa ekki hagsmuni af sjókvíaeldinu, að hafa eins sterka og góða tilfinningu fyrir því að þetta verði vel gert og hafa aðkomu að málinu, því að á endanum er það kannski þannig ef við hugsum bara um þessar slysasleppingar — og við vitum að það gerist vegna þess að hér á Íslandi eru alls konar veður og það getur alls konar gerst. Það er eiginlega ómögulegt halda því fram að það muni ekki gerast. Það er mikilvægt að þessir aðilar sem hafa hagsmuni hinum megin við borðið fái að koma sínum sjónarmiðum að. En á endanum þurfum við að komast að einhverri sátt um málið eins og mögulegt er.
Svo er það að vera með ófrjóan fisk í þessu, það myndi leysa gríðarlega mikið því að þá væri enginn möguleiki á því að hér myndi fiskur ganga upp í árnar og blandast við þá stofna sem eru fyrir í ánum. Við megum ekki gleyma því að það sem gerist er að ef eldisfiskurinn er að ganga upp í árnar og hann tekur þátt í hrygningu með villtum laxi eða hrygnir bara með öðrum eldisfiski þá er þannig komið að lífsferill seiðanna í ánum er — það er aðeins rokkandi hversu langur hann er. Hann getur verið stuttur, eða tvö til þrjú ár, ef mikið æti er í ánni og hún er hlý og gott fyrir seiðin að lifa. Hann getur verið kannski hátt í fimm, sex ár ef áin er köld og lítið um mat, þannig að þarna geta myndast seiðaárgangar í ánum sem við áttum okkur ekki á, sem eru þá að einhverju leyti ekki með erfðaefni úr fiskunum sem eru í ánum. Þetta er mál sem verður erfitt að vinda ofan af ef við missum tökin á því. Við höfum vítin til að varast. Við getum horft til Noregs þar sem mörgum ám hefur verið lokað tímabundið eða til lengri tíma. Það hafa myndast þannig lúsabelti í fjörðunum sem öll gönguseiði þurfa að ganga í gegnum og lenda þá í og verða fyrir miklum skakkaföllum. Bara það að það verði afföll vegna lúsar á gönguseiðum sem eru búin að lifa í ánum í þrjú til fimm ár og ganga til sjávar eftir það er hrikalega vont fyrir veiðiréttarhafa, virkilega vont. Þetta eru allt áhyggjur sem eru alveg réttmætar því að bæði höfum við átt við lúsafaraldur að stríða hér á Íslandi, fiskar hafa drepist í kvíum og við höfum orðið fyrir slysasleppingum þar sem töluvert magn af fiski hefur komist út. Þetta er þekkt. Það er langt síðan en sjálfur var ég við veiðar í Botnsá í Hvalfirði fyrir örugglega 20, 30, 40 árum, minnið er nú ekki betra en það, en þá voru seiðasleppingar í kvíum sem voru þá í Hvalfirði og það mokveiddist í ánni af eldisfiski. Hvort hann hafi haft varanleg áhrif á erfðamengi þeirrar ár veit ég ekki því að það voru engar mælingar gerðar þá.
Það sem þarf að gerast í þessum málaflokki núna er að við verndum þennan villta laxastofn, sem er ákveðið krúnudjásn Atlantshafslaxins í heiminum og er litið á hann sem slíkan. Auðvitað hafa verið gerð einhver mistök hér innan lands með einhverri erfðablöndun sem hefur ekki átt að eiga sér stað. En við eigum ekki að benda á eitthvað eitt slæmt og segja að það réttlæti eitthvað annað.
Svo er það hitt, þetta er vaxandi iðngrein sem getur skapað hér verulega miklar gjaldeyristekjur og getur hjálpað landsbyggðinni verulega mikið. Þannig að hér eru mjög sterkir hagsmunir báðum megin við borðið sem tengjast landsbyggðinni. Ég held að það versta sem við getum gert sé að etja þessum hagsmunaaðilum saman. Við verðum að komast að eins ásættanlegri niðurstöðu og hægt er og horfast virkilega í augu við það: Hvað er það versta sem gæti gerst hér á landi ef þetta frumvarp verður að lögum? Og hvernig munum við takast á við það ef það verður? Verða veiðiréttarhafar bara skildir eftir? Verður hringt til Noregs og tveir froskmenn fengnir hingað til að svamla upp árnar með skutulbyssur, sem er ekki trúverðug leið eða lausn til að hreinsa upp ár af eldisfiski? Við megum ekki fórna hagsmunum, þótt þeir séu mögulega minni en aðrir, fyrir eitthvað sem við getum komið í veg fyrir. Það er alltaf að verða þróun í þessu öllu saman með myndavélakerfum í kvíum og það þarf bara að tryggja það að ef það kemur eitthvað upp á, það rifnar gat á kví eða eitthvað slíkt, að viðbragðstíminn sé stuttur, að það sé hægt að fara og laga það, einn, tveir og þrír, þannig að slysasleppingar verði sem allra minnstar. Og svo líka að hugsa fram í tímann, ekki bara fimm ár eða tíu ár heldur áratugi og jafnvel árhundruð, um það hvað við viljum að vörumerki Íslands standi fyrir. Það skiptir líka máli og er til hagsbóta fyrir alla. Þetta er að ákveðnu leyti flókið mál en ég treysti alveg hv. atvinnuveganefnd, sem ég sit sjálfur ekki í, til að taka þetta mál til ítarlegrar skoðunar og átta sig á allri þeirri ábyrgð sem hvílir á nefndinni. Þetta er alvarlegt mál og hefur með lífsviðurværi margra að gera, bæði þeirra sem treysta á eldið úti í sjó, í opnum kvíum, og svo hinna sem eru um allt land með lítil fyrirtæki í kringum sínar ár sem veita súrefni út í þau samfélög sem eru þar.
Ég sé að tíminn er að styttast og ekki margar sekúndur eftir. Ég var ekki byrjaður að tala almennilega um landeldið, sem er lokað eldi, ég mun kannski taka það í seinni ræðu. Það er reyndar miklu dýrari stofnkostnaður þar, en þar er hægt að nýta allan úrgang laxins í áburð. En ég læt máli mínu lokið að sinni.