157. löggjafarþing — 89. fundur,  25. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegi forseti. Börnum og ungmennum líður því miður ekki öllum vel. Kvíði og þunglyndi eru vaxandi vandi samkvæmt rannsóknum. Ofbeldi, ótti og fíkniefnaneysla hefur því miður færst í aukana og oft og tíðum með skelfilegum afleiðingum. Það er mikilvægt fyrir okkur öll að vera vakandi fyrir þessu og að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við þau börn sem komin eru í vanda en ekki síður að efla allar forvarnir sem mögulega eru til að koma í veg fyrir að þau rati þangað.

Viðreisn hefur lagt á það mikla áherslu að opnuð verði fleiri úrræði til að aðstoða börn og fjölskyldur í vanda og tryggt að börn og fjölskyldur þeirra sem þurfa á stuðningi að halda detti ekki á milli kerfa. Börn eiga t.d. ekki að vera á biðlistum. Það er erfitt að standa frammi fyrir því að barnið manns sé komið í fíkniefnaneyslu. Að eiga barn með fíknivanda er einfaldlega eitthvað sem fólk talar yfirleitt lítið um og finnst þetta vera til marks um að þeim hafi mistekist sem foreldrar. Staðreyndin er samt sú að allir geta lent í þessu. Starfshópur forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuvanda skilaði af sér tillögum til ríkisstjórnarinnar nú fyrir stuttu sem ríkisstjórnin samþykkti og mun ýta í framkvæmd. Þar koma fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuvanda. Þar segir m.a.:

„Lagabreytingar sem tryggja viðeigandi aðgengi barna í vistunarúrræðum barnayfirvalda að heilbrigðisþjónustu.“

„Að tryggja markvissa samþættingu og samhæfingu barnaverndarþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir börn með vímuefnavanda …“

„Að tryggja að börn í bráðum alvarlegum vímuefnavanda hafi aðgang að sérhæfðri meðferð erlendis þar til sambærileg úrræði eru byggð upp á Íslandi.“

„Að tryggja að börn með alvarlegan vímuefnavanda fái viðeigandi þjónustu á réttum stað.“

Virðulegi forseti. Ég fagna þessum tillögum enda eru þær í anda stefnu Viðreisnar. Þetta er málaflokkur sem má ekki gleymast og þetta er hópur sem má ekki gleymast. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)