Störf þingsins.
Frú forseti. Samkvæmt mælingum Economist liggur fyrir að aðeins 6–8% mannkyns búa við það sem telst fullt lýðræði. 30–40% búa við svokallað gallað lýðræði. Þetta þýðir að þorri mannkyns býr við eitthvað allt annað stjórnarfar en við njótum góðs af hér á landi og við tökum því allt of oft sem gefnu. Við skulum ekki taka þessum sal sem gefnum. Í þessu sambandi ætla ég að tala sérstaklega um ungt fólk sem kynnist samfélaginu í gegnum stafræna veruleikann. Þar sjá þau hvert annað og geta birst öðrum. En hvernig sjá þau okkur? Sjá þau okkur einhvern tímann? Hvernig meta þau það eiginlega hvort þau geti treyst okkur, hvort sem við erum stjórnarmegin eða í minni hluta? Ná þau einhverjum tengslum við það sem við erum að segja? Við megum ekki halda í eina mínútu að það séu ekki öfl þarna úti sem vilja markvisst grafa undan því trausti sem við tökum sem gefnu og kannski eru þessi öfl bara miklu nær okkur en við höldum. Þess vegna skiptir máli að við séum traustsins verð. Við sem erum ekki hluti af Z-kynslóðinni þurfum að vakna til lífsins og við erum að reyna að gera það og erum að gera það. Hæstv. menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, Logi Einarsson, hefur lagt fram raunhæft plan til að móta gervigreindarumhverfið hér á Íslandi með sérstakri aðgerðaáætlun og það er bara byrjunin. Fyrir lítil samfélög eins og Ísland þá skiptir miklu máli að geta sett skýrar reglur vegna þess að stafrænt öryggi og fullveldi haldast hönd í hönd. Það er ekkert eðlilegt við það að gögnin okkar séu vistuð í skýjum erlendra stórvelda sem geta vaðið inn í þau og nýtt sér þau á sínum forsendum vegna þess að það er alls ekki (Forseti hringir.) erlendum stórveldum ofarlega í huga að við njótum trausts okkar kjósenda.