157. löggjafarþing — 89. fundur,  25. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Mig langar að velta fyrir mér á hvaða vegferð Morgunblaðið er í blaðamennsku sinni. Í dag skellir það á forsíðu sína með stríðsletri að Hamas-liðar hafi verið í einhverjum aðgerðum á Höfðatorgi. Þetta er gert með stríðsletri, sýnist mér. Það er enginn skrifaður fyrir þessari frétt og það er heldur enginn fótur fyrir henni. Lögreglan á Íslandi hefur sagt þetta vera rangt. Enginn fótur er fyrir fréttinni. Hún er röng. Hún hefur ekki fyrr birst en einn af starfsmönnum Morgunblaðsins fer að fimbulfamba um það hvort ekki beri að rannsaka íslensk hjálparsamtök sem hafi komið palestínsku flóttafólki í skjól á Íslandi og hvort yfirleitt eigi ekki að flæma allt palestínskt flóttafólk úr landi vegna þess að öryggi borgaranna sé númer eitt. Það er sem sé verið að teikna upp þá mynd að það stafi ógn af öllum palestínskum flóttamönnum sem hafa leitað skjóls á Íslandi. Það er tilgangur þessarar fréttar og þess sem hefur verið skrifað í eftirmála hennar.

Frú forseti. Þetta er beinlínis hættulegt. Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg. Hún byggir á svo veikum heimildum að lögreglan á Íslandi þarf að draga hana til baka. Lögreglan á Íslandi þarf að draga til baka fréttaflutning Morgunblaðsins um Palestínumenn á Íslandi. Svona er komið fyrir blaðamennsku hér á landi, nánar tiltekið uppi í Hádegismóum. Þetta er hættulegt. Þetta eykur ekki öryggi íslenskra þegna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)