Störf þingsins.
Frú forseti. Það er sama sagan með þessa ríkisstjórn. Eitt er sagt, en annað gert. Fjármálaáætlun verður kynnt á morgun. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa talað fyrir því að fara ekki í flatan niðurskurð heldur hafa pólitíska forgangsröðun og skera niður þar sem er fita og vernda annað, en nú er komið annað hljóð í strokkinn. Það virðist ekkert eiga að hagræða eða endurskipuleggja stóra málaflokka eins og í mennta- og heilbrigðiskerfinu, heldur á að fara í flatan niðurskurð annars staðar í kerfinu. Þá minni ég á, með leyfi forseta, að þann 4. desember sagði hæstv. forsætisráðherra:
„Við fórum vissulega þá leið að vera með lægri almenna aðhaldskröfu. Ég hef sjálf lengi verið þeirrar skoðunar, og það eru það fleiri í ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum, að almennur flatur niðurskurður sé ekki góð leið til að halda aftur af ríkisútgjöldum. Það er að einhverju leyti leið til að fría sig pólitískri ábyrgð …“
Ég endurtek: Það er að einhverju leyti leið til að fría sig pólitískri ábyrgð. Það er nákvæmlega það sem þessi ríkisstjórn er að gera. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„… leið til að segja að það fái bara allir jafnt, í staðinn fyrir að við komum hér inn og mögulega breytum lögum, eins og við erums að gera þessa dagana, förum í að sameina embætti, förum í að hagræða.“
Já, þá var tíminn annar. Hæstv. fjármálaráðherra hefur tekið í sama streng en í gær sagði hann um fjármálaáætlun sem verður kynnt á morgun, með leyfi forseta:
„„Þetta leggst svolítið flatt á, hjá því verður heldur ekki komist, þú nærð í sjálfu sér engum árangri öðruvísi,“ segir Daði Már spurður í hvaða málaflokkum ólin verði hert.“
Sem sagt, þau eru bæði búin að skipta um skoðun. Það má skipta um skoðun. En því miður þá heitir þetta að það sé búið að henda inn handklæðinu og nú á Evrópusambandið að bjarga okkur.