157. löggjafarþing — 89. fundur,  25. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Í vikunni hefur árlegt búnaðarþing bænda farið fram hérna í höfuðborginni, mjög vel heppnað búnaðarþing þar sem lagðar eru línurnar inn í framtíðina. Mér fannst ekkert smá skemmtilegt að sækja setningu þingsins og taka á móti bændum á skrifstofum Miðflokksins fyrr í vikunni. Ég vil bara segja: Takk fyrir frábæra samveru og frábær samtöl.

Forseti. Formaður Bændasamtakanna hefur ítrekað sagt að aðild Íslands að Evrópusambandinu hefði líklega verulega neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda, með leyfi forseta:

„Við höfum ekki komið auga á nein sérstök tækifæri fyrir heildarhagsmuni íslensks landbúnaðar með aðild að ESB.“

Þá hefur formaður Bændasamtakanna sagt að bændur og samtök þeirra í löndum innan ESB sýni óánægju með málefni landbúnaðarins innan Evrópusambandsins. Þetta eru staðreyndir. Svo er það nú þannig að landbúnaðarkaflinn er einn af þeim köflum sem aldrei voru opnaðir í aðlögunarviðræðum Íslands sem lauk árið 2013. Hvers vegna var það? Ísland uppfyllti ekki opnunarskilyrðin. Ísland uppfyllti ekki þau skilyrði sem ESB setur fyrir opnun kaflans. Það er nauðsynlegt að ráðherrar upplýsi þjóðina fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hvaða skilyrði af hálfu ESB gerðu það að verkum að ekki var hægt að opna kaflann um landbúnað. Þessu verður að fá svör við fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Forseti. Eitt í viðbót. Í morgun var opinn fundur utanríkismálanefndar þar sem hæstv. utanríkisráðherra sat fyrir svörum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðlögunarviðræður að ESB. Þar sagði utanríkisráðherra, varðandi landbúnaðinn, að gangi Ísland í ESB verði íslenska stuðningskerfið við landbúnað lagt niður og farið inn í ESB-kerfið. Gangi Ísland í ESB verður íslenska stuðningskerfið við landbúnað lagt niður. Þessu þarf að halda til haga, forseti. Þessu tengdu minni ég á að nú hefur t.d. tíu ára gildistími búvörusamninga (Forseti hringir.) verið framlengdur um eitt ár að undirlagi atvinnuvegaráðherra. Það er eins gott að ráðherra standi við þau tímamörk (Forseti hringir.) og dragi ekki bændur að nýjum búvörusamningum og komist ekki upp með að tengja slíkt ESB-óskhyggju sinni með tafaleikjum.