Störf þingsins.
Frú forseti. Þingvellir skipa einstakan sess í sögu og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar. Fáir staðir hafa jafn djúpa merkingu fyrir okkur sem þjóð þar sem saga, náttúra, stjórnskipan og trú fléttast saman í huga Íslendinga. Á Þingvöllum var Alþingi stofnað og kristinn siður tekinn upp. Þar stigum við fyrstu skrefin sem samfélag. Á Þingvöllum liggja rætur þjóðarinnar á mörgum sviðum. Tengsl þjóðarinnar við Þingvelli eru ekki aðeins söguleg. Staðurinn lifir tilfinningalega með þjóðinni, ungir og aldnir skunda á Þingvöllum á hátíðarstundum og þangað förum við gjarnan með erlenda gesti. Á Þingvöllum finnum við að við stöndum saman á helgum stað í sögu þjóðarinnar. Það er mikilvægt að rækta þessi tengsl því ekkert þrífst af sjálfu sér. Þjóð sem gleymir uppruna sínum stendur veikar í nútíð og framtíð.
Það er heiður og ánægja að njóta þess trausts að fá að vera formaður Þingvallanefndar. Starfsfólk Þingvallaþjóðgarðs á skilið þakkir okkar allra. Það er ekki sjálfgefið að halda gamla þingstaðnum í því ástandi sem við sjáum þar í dag. Umhirða svæðisins, fræðsla til gesta, verndun náttúru og virðing fyrir sögunni krefjast fagmennsku, elju og metnaðar. Það starf er unnið af mikilli alúð og það sér hver sá sem heimsækir garðinn. Við berum sameiginlega ábyrgð á því að varðveita Þingvelli fyrir komandi kynslóðir. Það er ekki aðeins verkefni Þingvallanefndar eða starfsfólks heldur þjóðarinnar allrar. Ég hvet okkur öll til að halda áfram að rækta tengslin við þennan merka stað, sýna honum virðingu og tryggja að komandi kynslóðir geti upplifað Þingvelli í allri sinni dýrð til framtíðar.