Störf þingsins.
Forseti. Það tók ríkisstjórnina rúmt ár að sturta niður vaxtalækkunarferlinu. Það finnst mér verulega sorglegt. Ég hafði góðar væntingar en veruleikinn er sá að planið, ef eitthvert plan var til staðar, virtist hafa raungerst með þeim hætti að gjöld á heimilin voru hækkuð, það var farið í útgjaldaaukningu upp á 9% og svo núna virðist eiga að nota einskiptisgreiðslu frá Kerecis til að reyna að sýna hallalaus fjárlög. Svo færum við hér umræðuna út í ESB, en frá hæstv. fjármálaráðherra kemur að það eigi að fara í flatan niðurskurð — þá vitum við það, virðulegi forseti — í stað þess að fara í alvöruaðgerðir, eins og við sjáum til að mynda í löndunum í kringum okkur; að lækka matarskatt, lækka álögur á barnavörur eða greiða niður þá hækkun sem blasir við á orkuverði eins og Svíar hafa verið að setja á dagskrá. Það virðist ekkert vera að frétta.
Það skiptir líka máli að í svona umræðu sé komið með lausnir. Við í Framsókn höfum verið að tala fyrir því að ríkisstjórnin nýti sér svokallaða verðbólgusíu þar sem allar ákvarðanir eru rýndar og metnar út frá því hvort þær séu verðbólguhvetjandi, styðji við trúverðuga hagstjórn og við peningastefnuna. En nei, það eina sem á að spóla í er flatur niðurskurður. Við höfum heyrt hér í umræðunni hvað hæstv. forsætisráðherra finnst um það, það hefur komið fram, henni líst ekkert á það.
Ég velti fyrir mér, virðulegi forseti: Hvert stefnum við í efnahagsmálum? (Forseti hringir.) Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að það verður að hlusta á atvinnulífið, hlusta á verkalýðsfélögin og umfram allt hlusta á heimilin í landinu og bregðast við.