157. löggjafarþing — 89. fundur,  25. mars 2026.

fundarstjórn forseta.

[15:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Hér fyrir ekki svo löngu síðan sagðist forseti þurfa að vinna sér inn traust, að traust hefði rofnað. Og ég minni á að forseti er forseti alls þingsins. Hér verður að gæta jafnræðis. Í pontu áðan kom hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson með Morgunblaðið og veifaði því hér fram og til baka og notaði það til að gera sína ræðu áhrifaríkari. Sjálfur hélt ég á bók sem ég nýtti mér í minni ræðu og ég fékk ákúrur fyrir frá frú forseta. Jafnræðis var greinilega ekki gætt þarna. Það er nokkuð ljóst að það skiptir máli hvort það er séra Jón eða Jón Pétur.