áhrif atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er andvígur strandveiðum, það liggur alveg ljóst fyrir. Varðandi rækju- og skelbætur þá ætti hann bara að kynna sér söguna, hvernig þær voru hugsaðar. (Gripið fram í.) Já, kanna það, endilega. Fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins hætti við að trappa niður rækju- og skelbætur. Það hafði komið beiðni um humarbætur, makrílbætur, jafnvel pælingar um loðnubætur út af aflabresti. Íslenska ríkið á ekki að bæta upp aflabrest á Íslandsmiðum. Það er mín skoðun. Það er mín pólitíska skoðun og það er ekki gott fyrir samfélagið að gera það.
Varðandi línuívilnun þá erum við með 20% línuívilnun til að styðja handbeitingu. Vélbeitingarvélar eru komnar. Við erum líka með 15% ívilnun varðandi stokkun. Þetta er gömul vinnuaðferð. Ef kvótaeigandi vill stunda handbeitingu þá bara gerir hann það. En ríkið á ekki að stuðla að því að framleiðni verði lítil í samfélaginu hvað þetta varðar. Framleiðnivandamálið er gríðarlegt þarna. (Gripið fram í: (Forseti hringir.) )
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að gefa ræðumanni hljóð.)
Varðandi rækju- og skelbætur þá er löngu tímabært að afleggja þessar bætur. (Forseti hringir.) Stykkishólmur hefur verið öflugur útgerðarstaður, verið með saltfiskvinnslu, og þessi 324 tonn sem (Forseti hringir.) Þórsnes SH hefur verið að fá eru ekki það sem tilvist Stykkishólms byggist á, (Forseti hringir.) hún gerir það ekki. Hún byggir á framtíðinni og að koma með nútímalegar lausnir í þessu kerfi.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að virða ræðutíma. Það er bara ein mínúta til ráðstöfunar í seinni umferð í óundirbúnum fyrirspurnum.)