aðgerðir til lækkunar verðbólgu.
Virðulegur forseti. Ekki góðar fréttir sem bárust í dag, verðbólga heldur áfram að hækka. Hæstv. ríkisstjórn sagði fyrir nokkrum mánuðum síðan, þegar við í stjórnarandstöðunni og fleiri vorum að benda á þá staðreynd að það væru blikur á lofti í efnahagsmálum, að hér væri um punktmælingu að ræða og að menn hefðu ekki stórar áhyggjur af því. Síðan þá hefur staðan, því miður segi ég, orðið önnur. Við erum stödd á þeim stað að miðað við fréttir morgunsins af greiningaraðilum eru menn að spá því að vextir muni hækka í næstu ákvörðun Seðlabankans. Ég held að öllum sé ljóst að þetta plan er ekki að virka.
Við í Framsókn erum til í að leggja fram ákveðnar aðgerðir til að sporna við þessari þróun og mig langar í raun og veru að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra út í þær aðgerðir sem við erum að velta fyrir okkur, m.a. þessa nýju verðbólgusíu sem við höfum verið að tala um, að allar stærstu ákvarðanir næstu mánaða þurfi að fara í gegnum þessa verðbólgusíu þar sem verður að spyrja í raun og veru: Mun þessi aðgerð draga úr verðbólgu eða auka hana? Þetta á við um gjaldskrárhækkanir, útgjaldaaukningar, ný lög, nýjar reglugerðir og skuldbindingar ríkissjóðs. Að sama skapi hvetjum við hæstv. ríkisstjórn til þess að skoða lækkun á matarskatti á fjölskyldur í landinu og að setja á tímabundið olíuþak. Aðhaldsstig ríkisfjármála má hins vegar ekki minnka og því verður að finna leiðir til að bæði þessi markmið geti gengið upp. Mig langar aðeins að fá álit hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra á þessari stöðu og þessum hugmyndum okkar í Framsókn.