aðgerðir til lækkunar verðbólgu.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna. Ég held að það sé alltaf skynsamlegt að við horfum til verðlagsáhrifa þeirra ákvarðana sem teknar eru í þessum þingsal. Ég held hins vegar að við verðum að viðurkenna við okkur að saga verðlagsþróunar og hagstjórnar á Íslandi bendir til þess að vandamál okkar séu stærri heldur en bara það að hér séu teknar ákvarðanir sem ekki styðji hagstjórnarmarkmið. Það er samtal sem ég held að sé líka mjög mikilvægt að við tökum, að við þorum að horfast í augu við hvaða undirliggjandi grunnþættir gera það að verkum að t.d. vaxtaákvarðanir Seðlabankans bíta ekki á Íslandi á sama hátt og þær bíta í nágrannalöndunum. Það að vera með fleiri en eina mynt í gangi í einu hagkerfi er t.d. alls ekkert sérstaklega góð hugmynd, sérstaklega þegar hagkerfið er lítið, opið og sveiflukennt.