aðhald í ríkisfjármálum.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og fyrir að lesa það sem ég hef skrifað, sem ekki margir gera ef ég á að viðurkenna alveg eins og er. Ég held að það sé mjög mikilvægt að halda til haga að þarna eru greiningar á kostnaði og ábata af strandveiðum og niðurstaðan þar er alveg skýr og hefur örugglega ekki breyst neitt: Það væri hægt að veiða þetta magn af fiski með ódýrari hætti og meiri hagnaði. Hins vegar eru efnahagslegu áhrifin, og það kemur fram í greininni, ekki einu áhrifin af ákvörðunum stjórnvalda og ég þarf ekki að útskýra það fyrir hv. þingmönnum að á Íslandi eru rekin alls konar kerfi sem við vitum að eru dýr en við rekum vegna samfélagslegra áhrifa þeirra. (JGH: Svara spurningunni. )Ég er búinn að svara spurningunni, hv. þingmaður. Ég sagði: Þetta er rétt, að úr efnahagslega ábatanum dregur, samfélagslegi ábatinn — þið gerið ykkur grein fyrir því. Fjöldinn allur af kerfum sem kosta peninga er samt til staðar þrátt fyrir að það væri ódýrara að leggja þau niður (Forseti hringir.) vegna samfélagslegra áhrifa þeirra og þess vegna get ég vel verið þeirrar skoðunar að strandveiðar séu skynsamleg pólitísk ákvörðun.