157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

birting fylgigagna með fjármálaáætlun.

[13:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þetta er auðvitað galið. Hæstv. ráðherra gengst bara við því að hafa, bara rétt áðan reynt — ókei, hann gengst ekki við því en það blasir við af orðum hans að hann er að afvegaleiða umræðuna hér í svari sínu með því að ýja að því að þessi gögn hafi verið birt í fyrra í samhengi við umræðuna en gengst svo við því hér mínútu síðar að þau hafi verið birt eftir að umræðunni var lokið. Þau þurfa að vera tiltæk þingmönnum í umræðunni. Það gerir ekkert gagn að þetta sé birt einhvers staðar í einhverjum felum löngu síðar.

Frú forseti. Ég bara biðla til þín að hlutast til um það að þessi gögn verði þingmönnum aðgengileg áður en fjármálaáætlun kemur hér til fyrri umræðu.