Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir að efna til þessarar mikilvægu umræðu. Einkarekstur eða ríkisrekstur; þetta er stóra spurningin. Almennt á ríkið að hlúa að samkeppnisrekstri og koma þeim rekstri til einkaaðila sem geta farið betur með hann. Ég hygg að eitt besta dæmið sem við getum nefnt sé einkavæðing Bifreiðaeftirlits ríkisins. Menn spenntu kvíðbogann svo hátt áður en þeir fóru með bílinn sinn til Bifreiðaeftirlits ríkisins að hann brast eiginlega, svo léleg var þjónustan. Nú er þjónustan aftur á móti frábær.
Ég hef lengi velt því fyrir mér hvers vegna við höfum komið jafn mörgum fyrirtækjum og raun ber vitni í hendur opinbers hlutafélags. Hvað þýðir það? Hvað merkir það? Við eigum núna, ríkið, um 45 ohf.-fyrirtæki, ekki nokkur fyrirtæki heldur marga tugi. Við þessa þróun höfum við að mörgu leyti útvistað pólitík, útvistað ákvörðunum, vegna þess að eigendastefna ríkisins situr hjá. Hún fer öll fram innan stjórnarinnar eins og hjá Isavia, sem vel að merkja er hlutafélag og getur hagað sér eftir því. Og hver er niðurstaðan? Pólitíkin sem rekin hefur verið í þessum sal fer fram einhvers staðar allt annars staðar. Hún fer fram í Dalshrauni í Hafnarfirði en þar er stjórnarfundur og aðalfundur Isavia jú haldinn í dag. Þar eru teknar ákvarðanir um að þýskir einkaaðilar geti selt öl og annað áfengi hér á Íslandi. Þar er tekin ákvörðun um það hvernig byggja á upp varaflugvelli fyrir austan og norðan og hér í Reykjavík. Þar eru teknar gríðarlega stórar ákvarðanir sem pólitíkin á Íslandi, þar á meðal hæstv. fjármálaráðherra, hefur í raun útvistað. Þetta er niðurstaðan af því að búa til 45 ohf.-fyrirtæki. Niðurstaðan er nefnilega sú að ákvarðanir sem eru gríðarlega mikilvægar fyrir þjóðina eru teknar annars staðar og fyrir utan þingsalinn.