Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir að efna til þessarar umræðu og sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu. Hér er mikið rætt um armslengdarsjónarmið og aðkomu pólitíkurinnar að ákvörðunum og rekstri þessara fyrirtækja. Ég er alls ekki sammála þeim sjónarmiðum sem komu upp hjá hv. þm. Bergþóri Ólasyni t.d., að þetta hafi verið mistök, sú breyting sem hér var gerð varðandi skipan í stjórnir. Það að skipa faglega í þessar stjórnir en ekki að skipa þær hér á þinginu er í samræmi við leiðbeiningar OECD og er þróun sem er í gangi allt í kringum okkur. Ég er aftur á móti sammála þeim sjónarmiðum sem hér hafa komið upp hjá hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni sem kom inn á það að í raun er verið að taka pólitískar ákvarðanir en ekki í þessum þingsal né á vettvangi sveitarstjórna. Ég aftur á móti tel að það að pólitíkin skipi fulltrúa í stjórnir sé ekki besta leiðin til þess heldur ættum við aftur á móti að skoða t.d. hvernig Norðmenn hafa gert það varðandi aðkomu þingsins að eigendastefnunni. Síðan eftir að eigendastefnan hefur verið sett er besta fólkið valið með faglegum hætti til að fylgja þeirri eigendastefnu eftir. Ég hvet okkur hér á hinu háa Alþingi til að skoða mögulegar breytingar á lögum um opinber fjármál, um það hvernig eigendastefnan er sett og hvaða þátt Alþingi hefur við gerð hennar.
Það er mjög margt mikilvægt sem hefur komið hér upp. Ég tek undir með hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur þegar hún ræðir um samkeppnisreksturinn. Tímarnir breytast og markaðir með. Fyrirtæki sem eitt sinn var í náttúrulegri einokunarstöðu er það kannski ekki lengur og þetta þarf að vera í stöðugri endurskoðun. Þegar Íslandspósti var komið á laggirnar ímyndaði ég mér kannski ekki að það ágæta batterí hafi verið í mikilli samkeppni við einkaaðila en það er náttúrlega gjörbreytt staða núna þannig að við þurfum alltaf að vera að endurskoða á hvaða forsendum hin ýmsu félög eru í eigu ríkisins og hvort jafnvel sé tilefni til að losa um eignarhald í einhverjum tilfellum.