157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.

[13:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og hæstv. ráðherra fyrir þessa umræðu sem þarf virkilega að taka. Mér finnst hæstv. ráðherra fara svolítið út á ystu brún þegar hann talar um að það borgi sig að eiga öll þessi fyrirtæki vegna þess að þau skili svo miklum arði í ríkissjóð og hann hagnist meira á því heldur en sem nemur vaxtagjöldum ríkissjóðs. Það held ég að gangi ekki upp. Hæstv. ráðherra getur kannski verið að vísa til Landsvirkjunar, sem ég veit ekki til að neinn stjórnmálaflokkur hafi á stefnuskrá sinni að selja, en hins vegar með mjög mörg önnur félög er þetta bæði áhætta og svo hafa þau heldur ekki verið að greiða arð. En nóg um það.

Ég ætla að ræða annað sem snýr að fjölgun þessara félaga og þessu fullkomna ógagnsæi þegar kemur að því hvernig ákvarðanir eru teknar, hver tekur þær og hver ber ábyrgð á þeim. Það er nú þannig, virðulegi forseti, að við erum t.d. með félag sem heitir Betri samgöngur. Það fæst ekki rætt hér á þinginu. Samgönguáætlun — það fékkst ekki rætt. Ráðherra tók því einstaklega illa þegar það var gert. Þarna eru undir 330 milljarðar. Þetta eru stærstu framkvæmdir Íslandssögunnar. Ég sem meðlimur í fjárlaganefnd kalla eftir að fá t.d. sjálfsagðar upplýsingar um arðsemi hverrar framkvæmdar, virðulegi forseti. Þau svör fást ekki. Sömuleiðis er þetta félag, sem á að sinna samgöngum, að reyna að koma í gegn og koma í framkvæmd gölnustu skipulagshugmyndum sem maður hefur séð, nánar tiltekið um Keldnalandið. Ég er bara að spyrja: Hver bar ábyrgð á því? Hvernig geta allir þeir sem það mál hafa kynnt sér, ég tala nú ekki um þá sem búa í nágrenni þess svæðis, beitt sér til að koma í veg fyrir þennan óskunda? Við erum komin á mjög skrýtinn stað, virðulegur forseti, þegar það finnst ekki neinn aðili sem er ábyrgur. (Forseti hringir.) Það finnst enginn aðili sem tekur ákvörðun. Við erum því miður komin á þennan stað og við þurfum virkilega að taka til í þessum málum.