157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.

[14:04]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tek undir orð síðasta ræðumanns, hv. þingmanns, en við sem þjóð eigum mörg þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem skipta okkur máli sem samfélag og mikilvægt er að standa vörð um. Ég vil nefna Ríkisútvarpið sem sinnir almanna- og menningarþjónustuhlutverki og ber skylda til að þjóna öllum landsmönnum með hlutlægum fréttaflutningi og afþreyingu, varðveislu íslenskrar tungu og menningararfs okkar og gegnir almannavarnahlutverki, svo eitthvað sé nefnt.

Þá vil ég nefna Íslandspóst sem sinnir alþjónustuhlutverki á póstmarkaði við alla íbúa landsins sem hefur skipt miklu máli fyrir hinar dreifðu byggðir og jafnræði í þjónustu við íbúa burt séð frá búsetu. Þjónusta sem ekki hefði verið til staðar eða byggst upp í höndum einkaaðila. Íslandspóstur hefur þróast hratt í nútímalegt fyrirtæki sem hefur byggt upp öflugt þjónustunet við alla landsmenn. Hann er í samkeppnisrekstri á sviði flutninga og hraðsendingaþjónustu sem þjónar heilbrigðri samkeppni og eftirlit er með af hálfu samkeppnisyfirvalda.

Þá vil ég nefna ÁTVR sem er í eigu íslenska ríkisins og starfar samkvæmt lögum um verslun með áfengi og tóbak. Ég tel það vera mikið lýðheilsumál að ríkið sé með einkasölu á áfengi og vísa þar til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem telur ríkiseinkasölu á áfengi vera mikilvæga forvörn og lýðheilsumál. Það er rökstutt með því að áfengi sé ekki venjuleg neysluvara og ríkiseinkasala talið mikilvægt tæki í forvörnum, einkasala myndi auka neyslu og rannsóknir sýna að áfengisneysla er minni í þeim löndum sem einkasala er en þar sem áfengissala er frjáls. Undir þetta tók yfirlæknir og krabbameinslæknir á Landspítalanum í Kastljósinu í gær þegar hún ræddi krabbameinsforvarnir og taldi að það væri rétt að hafa áfengi áfram í einkasölu en það hefur verið blautur draumur margra stjórnmálamanna að gefa áfengisverslun frjálsa. Það er mikilvægt að ríkið geti nýtt tekjur af áfengissölu til forvarna og heilbrigðismála sem óneitanlega tengist neyslu áfengis og tóbaks.

Ákveðin fyrirtæki og þjónusta á að vera áfram í höndum ríkisins. Það þjónar almannahagsmunum og er mikilvægt að það sé innan þess ramma sem eigendastefna ríkisins kveður á um og eftirlit sé haft með.