Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa þörfu umræðu. Auðvitað er margt þarna undir; fyrirtæki sem sinna gríðarlega mikilvægu starfi á Íslandi og starfsemi. En á undanförnum árum hefur það þróast þannig, alveg þvert á flokka, og mín upplifun verið sú að óánægja um eigendastefnu hefur aukist og hvert við erum að fara með formið. Ég velti fyrir mér núna, eftir þessa reynslu sem er komin á þetta að stórum hluta, hvort það sé kominn tími til að fara í einhvers konar endurskoðun, hvort við ættum að setja saman þverpólitíska nefnd sem fer í kjölinn á þessu, ekki bara hvert og eitt fyrirtæki og starfsemi heldur líka bara út frá byggðasjónarmiðunum, út frá lýðheilsu, út frá áhrifum á hagvöxt. Hvaða stjórntæki höfum við til að mynda á Alþingi til að bregðast við ef það þarf að draga úr til að mæta aukinni þenslu? Þá erum við stundum í þeirri stöðu, rétt eins og ráðherra og ríkisstjórn, að vera með kerfi sem sannarlega er aftengt frá okkur í svona armslengd, ef svo má segja, a.m.k. að stórum hluta, en talar kannski ekkert við stefnuna ef hún þarf að breytast mjög hratt. Ég held að þessi þarfa umræða hér hafi svo sem bent á margt sem betur má fara, sérstaklega hjá einstökum aðilum, en í heildina er þetta mitt framlag. Ég held að við þurfum kannski ekki neinar kollsteypur en við þurfum að velta fyrir okkur: Hvernig mun formið nýtast okkur til lengri tíma? Er það form að henta nútímasamfélagi? Og þurfum við ekki betri og skýrari leiðir til þess að við komumst áfram og getum tryggt að öll þessi starfsemi skili tilætluðum árangri til lengri tíma?