Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.
Forseti. Mér heyrðist á hæstv. ráðherra að planið sé að eiga 100% í öllum fyrirtækjum áfram og leyfa þeim sem stunda samkeppnisrekstur sjálf eða í gegnum dótturfélög að gera svo án nokkurra breytinga á næstunni. En þá velti ég því upp, t.d. eins og með Isavia: Fyrst það er ekki vilji til að skoða hvort við séum alveg á réttri braut með öll félög ríkisins, myndum við vilja fara til baka og að ríkið, t.d. í gegnum Isavia, reki alla veitingastaði á flugvellinum og kannski bókabúðina líka? Myndum við vilja fara þangað aftur? Af hverju þarf ríkið að byggja bílastæðahús og reka það við flugvöllinn? Væri hægt að fá aðra til þess? Er búið að skoða möguleikann á því og væri kannski góð samstaða um það að bjóða út reksturinn? Mér þætti mjög áhugavert að heyra það frá hæstv. ráðherra. Það var gert á Kýpur. Þeir buðu út reksturinn á tveimur flugvöllum og þeir aðilar sem komu að borðinu voru sérfræðingar í að byggja upp og reka flugvelli. Rekstraraðilarnir fjármögnuðu uppbyggingu og endurbætur og sáu um daglegan rekstur. Ríkið hélt á eignarhaldi og fékk arð greiddan. Nú er nýbúið að endursemja við þessa aðila. Ísland gæti farið sömu leið því að nú er fram undan mikil uppbygging á Keflavíkurflugvelli og við gætum samhliða samið um uppbyggingu á flugvallakerfinu landið um kring. Þannig gætu nærsamfélög samhliða byggt upp innviði út frá einhverju langtímaplani.
Svo vil ég benda á að það er ekki ófaglega skipað í stjórnir þó að þeir sem eru kjörnir af fólkinu í landinu tilnefni fulltrúa. Það er nefnilega þannig að þeir aðilar fara í gegnum faglegt mat líka. Það er ekki bara hæstv. fjármálaráðherra sem getur tilnefnt faglega aðila. Ég vil upplýsa hæstv. ráðherra um að það er beinlínis rangt að eigendastefnur ríkisins séu skýrar. Þær tala oft í kross svo ómögulegt er með góðum hætti fyrir stjórnarmenn að fylgja vilja (Forseti hringir.) eigandans. Raunar virðast þær oft nær því að vera til þess fallnar að fría eigandann allri ábyrgð á því hver er raunverulegur vilji eigandans.
Að lokum, frú forseti, þakka ég fyrir umræðuna og þeim sem tóku þátt.