Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að víkja aðeins að snjómokstri hér í Reykjavík. Við höfum kynnst óblíðri náttúrunni undanfarna daga. Það þarf auðvitað að hreinsa götur, gangstéttir og hjólreiðastíga fyrir alla þá sem ferðast um okkar ágætu borg og höfuðborgarsvæðið allt. En það sló mig frétt í Morgunblaðinu í vikunni þar sem kemur fram að helmingi meira fé er varið í að ryðja hjóla- og göngustíga heldur en íbúðargötur fyrir bifreiðar. Ég hef ekki fengið einhverjar frekari skýringar á þessu og það kann að vera einhver málefnaleg skýring. En miðað við þessar tölur þá slær þetta mig sem í hæsta máta furðuleg forgangsröðun hjá borginni. Það skiptir auðvitað máli að ryðja þær umferðaræðar sem flestir borgarbúar nota. Sem hlutfall af heildarferðum eru ferðir með strætisvögnum um 4% og eitthvað álíka mikið á hjólum. Það má ekki misskilja mig, það er auðvitað mjög brýnt að halda göngustígum og gangstéttum, íbúðargötum, færum fyrir gangandi og hjólandi. Það vekur mig hins vegar til umhugsunar um mikla sóun sem á sér stað í borgarlandinu sem felst í því að affall heits vatns úr húsum, bæði íbúðarhúsum og atvinnuhúsnæði, er að mjög miklu leyti ónýtt til að hita upp gangstéttir. Ég kalla eftir því og ég veit að Miðflokkurinn, komist hann að í borgarstjórn, mun beita sér fyrir því að draga úr þeirri sóun sem er og auka nýtingu á affalli frá húsum, sérstaklega í íbúðargötum, þannig að það affall fari í að hita götur en ekki sjóinn í kringum landið. Það er nefnilega skynsamlegt að nýta heita vatnið til að hita gangstéttir en ekki sjóinn í kringum landið.