Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hef áður komið í ræðustól og rætt einmitt um það sem þessi dagskrárliður á hinu háa Alþingi heitir, þ.e. störf þingsins. Í þessari viku höfum við fjallað ítarlega um frumvarp utanríkisráðherra um vegabréfsáritanir sem hefur fengið mikla umfjöllun og talsvert mikil vinna var lögð í nefndarálit meiri hluta hv. utanríkismálanefndar. Það er þó ekki það sem ég ætla að beina sjónum mínum að heldur að þeirri gagnrýni sem sett hefur verið fram á vinnu allsherjar- og menntamálanefndar í framangreindu máli. Utanríkismálanefnd sendi málið til allsherjar- og menntamálanefndar til að fjalla um tengsl við Schengen-samstarfið og hvort ástæða væri til að hafa áhyggjur af því að færsla ábyrgðar hefði áhrif á samstarf og ábyrgðarskiptingu milli dómsmálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Málið var tekið fyrir í nefndinni og fyrir hana boðaðir sérfræðingar dómsmálaráðuneytisins sem síðan álit meiri hluta nefndarinnar var byggt á. Hér í 2. umræðu um frumvarpið kom fram talsvert mikil gagnrýni á að formaður hefði ekki kallað fyrir nefndina fulltrúa Útlendingastofnunar og ríkislögreglustjóra. Þá komum við að því, virðulegi forseti, sem ég er að velta fyrir mér. Þegar mál fara á milli nefnda er þá eðlilegt og nauðsynlegt að kalla aftur fyrir nefnd, vissulega aðra nefnd, sama fólkið og hafði skilað inn umsögn og komið fyrir nefnd þá þegar og gert grein fyrir sínum skoðunum? Með þessum vangaveltum er ég ekki að reyna að þyrla upp einhverju ósætti heldur raunverulega að leita svara um störf þingsins. Rétt er að geta þess að á þessum tíma þegar þetta var lá ekki fyrir álit meiri hluta utanríkismálanefndar og þær breytingartillögur sem komu síðan fram. Því hefðu gestirnir ekki haft nein ný gögn til þess að velta fyrir sér.
Virðulegur forseti. Er það eðlilegt að gestir komi fyrir fleiri en eina nefnd í sama máli um sömu atriði og eru það þar með rétt vinnubrögð yfirhöfuð að vísa málum með þessum hætti á milli nefnda? Hver er tilgangurinn? Er farið vel með tíma gesta og nefndarfólks með þessum hætti? Spyr sá sem ekki veit.