Störf þingsins.
Frú forseti. Það var vont að heyra af því í morgun að upp úr viðræðum heilbrigðisráðuneytisins og Klíníkurinnar hafi slitnað. En það var fagnaðarefni þegar heilbrigðisráðherra sagðist vera að fara í viðræður við Klíníkina um að veita þjónustu til að bregðast við því mikla álagi sem væri á Landspítalanum, einkum á bráðamóttökunni, og voru bundnar vonir við að út úr því kæmi eitthvað nytsamlegt. En nú kemur í ljós, samkvæmt tilkynningu frá Klíníkinni, að ráðuneytið hafi frá upphafi verið að ræða þjónustu við fyrirtækið sem var ljóst frá upphafi að yrði erfitt fyrir Klíníkina að veita. Þeir eru sérhæfðir í skurðaðgerðum ýmiss konar og vilja leggja til, að létta á þeim áskorunum sem við Landspítalanum blasa, að nýta sína sérhæfingu. Þeir voru ekki að leggja til að koma upp mjög sérhæfðum legudeildum fyrir aldraða sem eru með heilsumat sem þarf mikla sérþekkingu og sérhæfni til að takast á við. Þannig að það er mjög leitt að heyra að það hafi slitnað upp úr þessum viðræðum og enn verra að heyra að það hafi verið ljóst frá upphafi að sú þjónusta sem ráðuneytið vildi ræða væri ekki til staðar af hálfu þessa fyrirtækis. Því finnst mér að í þessari stöðu verði heilbrigðisráðherra að bregðast við. Ég vona að (Forseti hringir.) samtalinu verði haldið áfram, að þetta samtal sem fór í gang hafi ekki verið (Forseti hringir.) sýndarmennskan ein. Ég vona líka að það sé ekki rekstrarfyrirkomulag fyrirtækjanna sem eru að standa í (Forseti hringir.) ráðuneytinu. Vilji er allt sem þarf. Leysum málin og höldum áfram samtalinu (Forseti hringir.) við þetta fyrirtæki til að létta á álagi og vandamálum innan spítalans þar sem skurðaðgerðum er frestað, eins og (Forseti hringir.) forstjóri spítalans hefur ítrekað. — Afsakaðu, forseti.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)