157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

Störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Í síðustu viku lauk fyrri umræðu hér í þingsal um tillögu hæstv. utanríkisráðherra þess efnis að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Tillagan gekk til hv. utanríkismálanefndar þar sem hún er nú til meðferðar. Ég hlakka til þess að hún komi til síðari umræðu hér í þingsalnum eftir mikla og góða vinnu í nefndinni. Það er kunnara en frá þurfi að segja að skoðanir eru skiptar á meðal landsmanna og það hefur verið töluverð umræða í þjóðfélaginu um tillöguna og hvað hún þýðir í raun. Fyrir mér er þetta einfalt: Við greiðum atkvæði um það hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið eða ekki. Því hefur verið haldið fram að það sé ekki meiri hluti í þinginu fyrir því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það má vel vera að það sé rétt en það þarf að mínu mati að höggva á þann hnút sem hnýttur var þegar ríkisstjórn sú sem var við völd árin 2013–2016 tilkynnti Evrópusambandinu að aðildarviðræðum við það væri hætt. Sú ákvörðun byggðist ekki á ályktun Alþingis en þingið hafði samþykkt þingsályktunartillögu um að hefja viðræðurnar.

Frú forseti. Langheppilegasta leiðin til að skera úr um það hvert skuli halda héðan hvað varðar samband okkar við Evrópusambandið er að þjóðin skeri úr um það. Það klýfur ekki þjóðina að hún fái að ákveða hvort halda eigi áfram viðræðum, hvort sem niðurstaðan verður já eða nei. Þannig er jú lýðræðið. Sjálfur hef ég lengi verið hlynntur aðild. Ég tel að stærri gjaldmiðill styrki hagkerfið, að aðild að tollabandalagi verði okkur hagstæð og við eigum að eiga aðild að því þegar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á okkur og okkar hagsmuni eru teknar. Þá hafa breyttar öryggisaðstæður í heiminum vakið mig til umhugsunar um mikilvægi ríkjabandalaga og hvort hag okkar sé enn betur borgið með því að slá einni stoð til viðbótar undir öryggishagsmuni okkar, þ.e. til viðbótar við aðild okkar að NATO og varnarsamninginn við Bandaríkin. Það er rétt að taka það skýrt fram, frú forseti, að í sumar verður aðeins spurt um eitt, hvort halda eigi áfram viðræðum. Ekki verður kosið um aðild.

Frú forseti. Leiðin fram á við er skýr: Þjóðin á að ákveða hvort viðræðunum verður haldið áfram og síðar eftir atvikum hvort samningurinn verður samþykktur. Beint lýðræði er góður kostur við þessar aðstæður.