157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

Störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég held áfram á svipuðum slóðum og hv. þingmaður hér í pontu á undan mér. Ég vil gera að umtalsefni þjóðaratkvæðagreiðslu sem líklega bíður þjóðar í lok sumars eða í haust. Ég vil taka það fram að mér finnst ríkisstjórninni til hróss að ætla að spyrja þjóðina þessarar veigamiklu spurningar áður en samtal hefst við Evrópusambandið um hvernig aðild myndi þá líta út og að sjálfsögðu einnig til hróss að sá samningur eða sú niðurstaða yrði einnig borin undir þjóðina eftir að því samtali lýkur.

Það er hins vegar, frú forseti, eitt atriði sem ég hef engan hv. stjórnarliða heyrt tala um og er í mínum huga algjör forsenda þess að það sé yfirhöfuð sanngjarnt að spyrja þjóðina þessarar spurningar, sem er: Kemur til greina af hálfu íslenskra stjórnvalda að á meðan þessu samtali stendur við Evrópusambandið verði samhliða því gerðar breytingar á íslenskum lögum og reglum áður en samningur er borinn undir þjóðina öðru sinni? Þetta er lykilatriði. Þetta hefur ekkert að gera með að kíkja í pakkann eða fá meiri upplýsingar. Þetta hefur allt að gera með mjög heiðarlega spurningu gagnvart þjóðinni, hún verður að fá að vita hvort á meðan því samtali stendur verði gerðar breytingar á íslenskum lögum í þágu ESB. Þetta er lykilatriði. Ég hef enn ekki heyrt svar við þessu. Ég tel þetta það mikið grundvallaratriði að ég mun gera allt sem ég get til þess að stjórnvöld svari þessu heiðarlega gagnvart þjóðinni og þó svo að það mögulega endi á því að ég setji auglýsingu í smáauglýsingar hjá einhverju dagblaðanna (Forseti hringir.) þá verður það niðurstaðan. Ég vona að stjórnvöld sjái sóma sinn í því að koma með heiðarlegt og skýrt svar fyrir þjóðina sem fyrst (Forseti hringir.) og að sjálfsögðu áður en þessi spurning er lögð fyrir þjóðina.