fylgigögn með fjármálaáætlun.
Frú forseti. Nú er skaði af því að hæstv. fjármálaráðherra sé ekki kjörinn fulltrúi, þá væri hann í salnum. En í gær kynnti hæstv. fjármálaráðherra tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun. Ég og hann höfðum átt orðaskipti hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma í byrjun dags í gær þar sem hæstv. ráðherra upplýsti um, eins og hann orðaði, með leyfi forseta:
„Varðandi mælikvarðana þá erum við hv. þm. Bergþór Ólason enn þá ósammála um að það sé lagaleg skylda til að leggja þessi gögn fram. Þau verða nú samt lögð fram til þess að þóknast þingheimi, enda dettur okkur ekki annað til hugar en að gera það.“
Í gær var birt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og þessi gögn er hvergi að sjá. Ég vil biðja virðulegan forseta um að hlutast til um að gengið verði í þetta hið snarasta. Það er útilokað fyrir okkur þingmenn að glöggva okkur á raunverulegu efnisinnihaldi, hvernig á að ná markmiðum fram og þar fram eftir götunum, nema hafa aðgengi að þessum gögnum. Miðað við fyrirsláttinn sem hæstv. ráðherra sýndi hér í fyrirspurnatíma í gær þá bara biðla ég til virðulegs forseta að hlutast til um að þetta verði birt hið snarasta.(Forseti hringir.) Þetta er grundvöllur þess að það sé hægt að ræða fjármálaáætlun hér þegar þing kemur saman eftir páska.