157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

fylgigögn með fjármálaáætlun.

[13:03]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég er nú á öðrum nótum en hv. þingmaður en ég held að það sé mikilvægt að koma hérna upp í fundarstjórn og minna á að það var 4. mars sem ég óskaði eftir því að það yrði komið til móts við beiðni mína um opinn fund með forsætisráðherra varðandi ummæli sem hún lét falla í febrúar og snúa að stóra málinu sem hér er til umræðu, þingsályktunartillögu um aðlögunarviðræður við Evrópusambandið. Málið hefur auðvitað komið inn í nefndina sem er bara hið besta mál og er þar í vinnslu. Ég vil þakka formanni fyrir að gefa mér tækifæri til að bóka um málið. Það liggur fyrir. Ég hef ítrekað þetta tvisvar. En nú liggur fyrir að við erum hér á leiðinni í páskafrí, virðulegi forseti, og ég auðvitað vonast til þess að tíminn verði nýttur vel þannig að hægt verði að halda opinn fund með hæstv. ráðherra um leið og tækifæri gefst enda ekkert mál í vinnslu hér sem er mikilvægara en þetta.