157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

564. mál
[15:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Frumvarpið á rætur að rekja til fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var 29. október á síðasta ári. Hér er lagt til að heimild einstaklinga til að ráðstafa viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar skattfrjálst inn á höfuðstól lána sem eru tekin vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði varanleg.

Úrræði í svipaðri mynd kom fyrst til sögunnar árið 2014 og var þá lögfest til þriggja ára. Gildistími þess var framlengdur fimm sinnum en það féll svo úr gildi 1. janúar á þessu ári og hafði þá verið samfellt í gildi í ellefu og hálft ár en ekki þrjú eins og til var stofnað.

Í þessu frumvarpi er lagt til að um úrræðið gildi framvegis sérlög, þau verði ótímabundin og öðlist þegar gildi en að mögulegt verði að sækja um að nýta heimildina afturvirkt frá 1. janúar 2026 eða frá og með þeim tíma sem úrræðið féll úr gildi.

Í öllum meginatriðum er lagt til að sambærileg skilyrði gildi um nýtingu úrræðisins og gilt hafa undanfarin ár. Nokkrar breytingar eru þó lagðar til og þær eru þessar helstar:

1. Að hámarksupphæð miðist í öllum tilfellum við einstaklinga í stað þess að sérstakt lægra viðmið gildi um hjón eða sambúðarfólk.

2. Að einstaklingar geti nýtt sér heimildina í samanlagt tíu ár eða samtals 120 mánuði að hámarki.

3. Að hámarksfjárhæð til skattfrjálsrar ráðstöfunar á árinu 2026 geti að hámarki numið samtals 500 þús. kr. en að sú fjárhæð taki árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs eftir það, fyrst árið 2027.

Í tillögu frumvarpsins um að einstaklingar geti nýtt sér úrræðið að hámarki í samanlagt tíu ár eða samtals 120 mánuði felst að það mun ekki taka til einstaklinga sem þegar hafa nýtt önnur sambærileg skattfrjáls úrræði í samanlagt tíu ár eða lengur.

Aðrir einstaklingar sem uppfylla skilyrði frumvarpsins geta hins vegar nýtt sér heimildina allt þar til þeir ná samanlögðum tíu ára ráðstöfunartíma. Þá getur úrræði frumvarpsins einnig tekið til fyrstu kaupenda sem teljast hafa fullnýtt skilyrði laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð en ekki náð að nýta heimildir þeirra laga í samanlögð tíu ár.

Í frumvarpinu eru jafnframt tillögur um breytingar á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Þeim er ætlað að samræma betur skilyrði úrræðanna tveggja, einfalda framkvæmd og koma í veg fyrir að ólík skilyrði í úrræðunum tveimur skapi óæskilega hvata. Þannig er í frumvarpinu lagt til að fallið verði frá skilyrði um tíu ára samfellt tímabil ráðstöfunar í lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð og rétthöfum heimiluð ráðstöfun viðbótariðgjalda í samanlögð tíu ár. Einnig er lagt til að hámarksfjárhæðir laganna taki árlegum hækkunum í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027, og taki mið af breytingum á vísitölu neysluverðs. Loks er tillögum um breytingar á lögum um tekjuskatt ætlað að tryggja einstaklingum áframhaldandi skattfrelsi við nýtingu úrræðanna.

Forseti. Erfitt er að segja til um hversu margir muni óska eftir því að nýta sér heimildina þar til hámarki ráðstöfunartímans er náð. Það liggur fyrir að tæplega 55.000 einstaklingar hafa ekki nýtt sér úrræðið í samanlagt tíu ár. Þá munu einstaklingar sem teljast hafa fullnýtt núgildandi heimildir laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð en ekki náð samanlögðum tíu ára ráðstöfunartíma geta óskað eftir því að nýta sér úrræði frumvarpsins.

Erfitt er að meta tekjutap ríkissjóðs og sveitarfélaga af heimildinni til framtíðar. Forsendur um tímalengd, vexti og skattkerfi framtíðarinnar hafa áhrif á matið og eru óvissu háðar.

Ef miðað er við það skattkerfi sem nú gildir og þær upplýsingar um notkun sem liggja fyrir má gera ráð fyrir því að heildaráhrif heimildarinnar á ríkissjóð geti numið allt að 4,3 milljörðum og á sveitarfélög um 2,6 milljörðum á ári. Tenging við vísitölu neysluverðs mun auka áhrifin enn frekar til lengri tíma litið. Gera má ráð fyrir að eftirgjöfin fari lækkandi eftir því sem fleiri fullnýta heimildina og að fimm árum liðnum nemi hún um 2,2 milljörðum fyrir ríkissjóð og 1,4 milljörðum í útsvar til sveitarfélaga.

Frekari rýmkun á fjárhæðarmörkun úrræðisins en frumvarpið gerir ráð fyrir er ekki talin æskileg enda væri hún til þess fallin að hafa óheppileg áhrif á bæði verðlag og húsnæðismarkað.

Forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.

(Forseti (HildS): Forseti vekur athygli á því að hafa horft í gegnum fingur sér gagnvart þeirri reglu að ekki má stíga úr pontunni eftir að forseti er ávarpaður.)