Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 531, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni, á þskj. 918, um áhrif hækkana almannatrygginga á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni, og á þskj. 932, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Einnig hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 525, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni, á þskj. 926, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, og á þskj. 938, um búvörusamninga, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
Þá hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 820, um fjárframlög og styrki til samtaka og stofnana, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
Að lokum hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 782, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni.