157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

umgjörð þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB.

[15:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa spurningu. Það er alveg skýrt um hvað verður kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Þá erum við að spyrja hina íslensku þjóð hvort hún vilji að við klárum samning, af því að þetta eru samningaviðræður, við Evrópusambandið og síðan að leggja þann samning undir þjóðina. Ég tel mikilvægt að hafa í huga að það er tæpast hægt að mínu mati að ætlast til þess í svona spurningu að það megi ekki vísa til tiltekinnar staðreyndar. Ég segi staðreyndar af þeirri ástæðu einni að það er til fólk, m.a. hér í þessum þingsal, sem afneitar staðreyndinni og staðreyndin er auðvitað sú að umsóknin var aldrei afturkölluð. Það er hin einfalda skýra staðreynd. Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu var samþykkt með þingsályktun í þinginu á sínum tíma og ég tel mjög mikilvægt að við berum virðingu fyrir þinginu í þessu máli. Málið er núna komið inn til þingsins. Það er í lögbundnum farvegi núna, þar með talið lögbundnu samráði við landskjörstjórn. Það að segja núna einhvern tímann að sú staðreynd að umsóknin hafi ekki verið dregin til baka valdi einhverri óvissu breytir ekki því að við getum kosið um þá staðreynd að halda áfram viðræðum. Þingið afturkallaði aldrei umsóknina. Ríkisstjórnin 2013–2016 reyndi tvisvar. Það var ekki þingmeirihluti fyrir því að kalla aftur umsóknina. Þá var farið af stað í einhver bréfaskipti og þau voru ekki skýrari en svo að Evrópusambandið hefur alveg sagt skýrt að umsóknin sé í fullu gildi.

Það sem mér finnst skipta máli er einmitt virðing fyrir þinginu og virðing fyrir því sem þingið hefur ákveðið, ekki að framkvæmdarvaldið geti síðan eftir hentugleika eða hugleysi yfir því að hafa ekki komið með málið inn í þingið gripið til afgerandi samskipta sem ekki einu sinni fóru fyrir utanríkismálanefnd á sínum tíma. (Forseti hringir.) Ég vil sýna þessu máli virðingu. Ég er algerlega þeirrar skoðunar að við erum að greiða atkvæði núna 29. ágúst um það að klára samningaviðræður við Evrópusambandið, (Forseti hringir.) bjóða upp á fleiri valkosti í þessum hverfula heimi sem við Íslendingar og heimsbyggðin öll lifum í.

(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna þingmenn og ráðherra á að gæta að ræðutímanum.)