157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

umgjörð þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB.

[15:10]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er nú bara þannig að það að umsóknin hafi ekki verið afturkölluð er ekki staðreynd og það er það sem landskjörstjórn er að draga fram, að þetta er ekki óumdeilt mál.

En mig langar að fara að öðru. Um helgina stóð Samfylkingin ein að kosningaútspili í Kópavogi þar sem lofað var lögfestum rétti til leikskólavistar frá 12 mánaða aldri og nýjum útgjöldum úr ríkissjóði. Í dag er skýrt viðmið í leikskólum að tveir þriðju starfsmanna skuli vera fagmenntaðir. Flest sveitarfélög eru langt undir því marki og ef á að lögfesta leikskólavist 12 mánaða barna og þaðan í frá þá blasir við að það þarf að ráða um 2.400 faglærða kennara, auk rúmlega 600 nýrra stöðugilda. Þar að auki er kostnaður metinn á a.m.k. 15 milljarða og það er áður en húsnæðisþörfin er metin.

Mín spurning er því þessi: (Forseti hringir.) Var hæstv. utanríkisráðherra upplýstur fyrir fram um þessi loforð Samfylkingarinnar? Er hún þeim samþykk og finnst henni það ábyrg fjármálastjórn að lofa útgjöldum (Forseti hringir.) af þessari stærðargráðu í miðri kosningabaráttu og nota ríkissjóð eins og kosningasjóð (Forseti hringir.) Samfylkingarinnar?

(Forseti (ÞSv): Forseti ítrekar að þingmenn virði ræðutímann.)