umgjörð þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB.
Virðulegi forseti. Ég undirstrika: Það er ekki hægt að ætlast til þess að það megi ekki vísa til staðreynda — það er staðreynd að umsóknin var ekki lögformlega afturkölluð — bara af þeirri ástæðu einni að einhverjum hér inni, tilteknum þingmönnum, líður illa með það og afneita þeirri staðreynd. Hitt er síðan að við vitum það alveg sem fylgjumst með pólitík og vorum í pólitík á þeim tíma en líka þau sem fylgdust með því utan frá að það var kannski síðasta mikilvæga verkið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert í þessu, að koma í veg fyrir að umsóknin væri formlega afturkölluð. Sjálfstæðisflokkurinn, hann má eiga það, kom í veg fyrir að umsóknin var formlega afturkölluð. Þess vegna er hún enn í gildi og Evrópusambandið hefur tekið af öll tvímæli um það. Feneyjanefndin er síðan líka með málið til umsagnar. (GHaf: Svaraðu spurningunni.)
Varðandi síðari spurningu þá finnst mér gott að flokkar, hvort sem það er Samfylkingin, Viðreisn, Flokkur fólksins eða aðrir flokkar, hafi metnað í leikskólamálum. (Forseti hringir.) Það skiptir mjög miklu máli fyrir allt samfélagið, hvort sem er hér á suðvesturhorninu eða á landsbyggðinni. Það var kynnt skýrsla fyrir ríkisstjórninni (Forseti hringir.) um msöguleikana eftir að fæðingarorlofi lýkur, hvað hægt sé að gera, og mér finnst sjálfsagt að við tökum þá umræðu áfram. Allir flokkar eru í sinni pólitík. (Forseti hringir.) Ég ber virðingu fyrir öllum þeim flokkum sem bjóða fram til sveitarstjórna af því að það er það frábæra við íslenskt samfélag. Við erum með opnar og skýrar kosningar þar sem áherslur flokka eru mismunandi og ég ber einfaldlega virðingu fyrir því.
(Forseti (ÞSv): Forseti ítrekar þau tilmæli til þingmanna og ráðherra að virða ræðutímann.)