kostnaðarrammi í tillögum ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Um stund töldu landsmenn að þeir væru að fylgjast með blaðamannafundi fyrir framan Four Seasons Total Landscaping um helgina en það var ekki Rudy Giuliani sem mætti heldur hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir og fór yfir kosningaútspil Samfylkingarinnar. Svona í ljósi svara hæstv. utanríkisráðherra við fyrirspurn hv. formanns Sjálfstæðisflokksins hér rétt áðan þá langar mig að spyrja í ljósi þess að nú hefur bæjarstjóri í einu nágrannasveitarfélagi höfuðborgarinnar upplýst að þetta sé kostnaðarrammi upp á 15 milljarða á ári sem þessi loforð kalla fram: Var þetta rætt í ríkisstjórn og eftir atvikum samþykkt þar og er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem verður rædd hér í fyrri umræðu á morgun?