kostnaðarrammi í .
Virðulegi forseti. Ég segi bara að það er sama hvaðan gott kemur. Mér finnst mikilvægt, og það er gott að finna það að við erum að byrja að ræða bæði úti í sveitarstjórnum en líka hér á hinu háa Alþingi hvernig við leysum það að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og skólagöngu þannig að … (BergÓ: Þú svarar ekki spurningunni.) — Ég er að svara. Ekki nema Miðflokkurinn vilji ritstýra öllu sem héðan kemur. Hitt er síðan að við erum auðvitað með eðlilegar og óeðlilegar áherslur í þessu. Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin hefur hug á því, m.a. á grunni þeirrar skýrslu sem var kynnt fyrir ríkisstjórninni að skoða allar þær leiðir, og það er ekkert nýtt, ekki hjá neinum stjórnarflokkanna, til að reyna að brúa bilið í samvinnu og sinki og í samstarfi við sveitarfélögin. Þangað ætlum við að fara. Hvaða áherslur hver og einn stjórnarflokkur setur síðan fram, það er bara í góðu lagi. Það eru sveitarstjórnarkosningar fram undan og við eigum ekkert að vera feimin við það að þær eru að einhverju leyti með mismunandi hætti. Það sem er alveg skýrt aðgerðahópur skilaði tillögum til ríkisstjórnarinnar í desember þar sem hann lagði til tímasetta áætlun um brúun umönnunarbilsins og ég hefði haldið að menn myndu fagna því. Við ætlum einfaldlega að taka þá vinnu áfram og við gerum það í samvinnu við sveitarstjórnarstigið, að sjálfsögðu.